Raunfærnimat
Raunfærnimat er formlegt mat á þekkingu og færni sem þú hefur aflað þér utan skóla – með starfsreynslu, starfsnámi, námskeiðum, félagsstörfum og lífsreynslu. Matið greinir hvar þú stendur, metur færnina til eininga og gefur þér kost á að ljúka iðnnáminu sem þú hófst á sínum tíma. Rúmlega 500 manns hafa lokið raunfærnimati í iðngreinum hjá Rafmennt.
Fyrir hverja?
Raunfærnimat er fyrir þá sem hafa starfað í rafiðnaði eða við hljóðtækni – upptökur, hljóðvinnslu og mögnun – án þess að hafa lokið námi í greininni.
Mat á | Lágmarksaldur | Starfsreynsla í greininni |
|---|---|---|
3. þrepi | 23 ára | 3 ár |
4. þrepi | 25 ára | 5 ár |
Greinar í boði
Ertu í stuði? – rafiðngreinar
Fyrir þá sem hófu nám í rafiðngreinum en luku því ekki. Metið er á móti námskrá, út frá hæfniviðmiðum áfanga í grunndeild og fagnámi, svo hægt sé að mæta þátttakendum hvar sem þeir eru staddir í náminu og koma þeim aftur af stað. Þegar öllum námsþáttum er fullnægt fá þátttakendur rétt til að þreyta sveinspróf – útskriftin sjálf er úr skóla, ekki frá Rafmennt.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Rafiðnaðarsamband Íslands, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Tækniskólann, Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Samtök rafverktaka og starfsgreinaráð í rafiðngreinum.
Nám í almennum greinum í Tækniskólanum fyrir þátttakendur í raunfærnimati
Ertu í hljóði? – hljóðtækni
Metið er á móti færnikröfum sem faghópur úr ólíkum greinum hljóðtækni og stjórnenda setti saman, með hliðsjón af námskrá í hljóðtækni (2020) og þeirri færni sem hljóðmenn þurfa í starfi. Þegar öllum námsþáttum er fullnægt fá þátttakendur burtfararskírteini í hljóðtækni.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Skerpu, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Tækniskólann.
Hvernig ferlið gengur
- Umsókn á Innu
Þú sækir um rafrænt á Innu á umsóknarfresti.
- Kynningarfundur
Eftir að umsóknarfresti lýkur eru verkefni ferlisins kynnt á fundi á Teams. Dagsetningar eru í dagskrá haustsins.
- Færnimappa
Þú bókar fund með náms- og starfsráðgjafa, sem aðstoðar þig við færnimöppuna, fyllir hana út og skilar á Innu.
- Gátlisti – sjálfsmat
Á gátlistafundi er farið yfir gerð gátlista fyrir sjálfsmat. Þú metur eigin færni, skilar á Innu og ferð yfir sjálfsmatið með fræðslufulltrúa.
- Matsviðtöl
Metendur – fagaðilar í greininni – boða þig í viðtöl. Þar kemur þú þekkingu þinni og færni á framfæri og getur verið beðin/n að sýna hana eða vinna úr lýsingum á aðstæðum. Náms- og starfsráðgjafi getur setið viðtölin þegar það á við.
- Niðurstöður og næstu skref
Niðurstöður eru skráðar á Innu. Þú getur bókað tíma hjá náms- og starfsráðgjafa sem fer yfir þær með þér og ræðir næstu skref.
Ítarlegri lýsing á hverju skrefi, matsviðtölunum og lokamarkmiðum eftir greinum: Raunfærnimatsferlið →
Hvað kostar raunfærnimat?
Þátttakandi | Gjald |
|---|---|
Hefur ekki lokið námi á framhaldsskólastigi | Að kostnaðarlausu |
Félagsmaður sem hefur áður lokið einingum í raunfærnimati og/eða lokið framhaldsskólanámi | 50.000 kr. fyrir önnina, óháð einingafjölda |
Aðrir sem hafa lokið formlegu námi eða áður tekið þátt í raunfærnimati | 186.000 kr. þátttökugjald og 2.280 kr. fyrir hverja staðna einingu |
Gögn og upplýsingar
- PDFLeiðbeiningar um umsókn á Innu448 KB
- PDFDagskrá haust 2026Mikilvægar dagsetningar · 113 KB
- WordFærnimappaSkjalið sem þú fyllir út og skilar á Innu · 236 KB
- PDFNámskrá í rafiðngreinum 2009740 KB
- VefurNámskrá í rafvirkjun 2019namskra.is
- VefurNámskrá í rafeindavirkjun 2019namskra.is
- VefurNámskrá í hljóðtækni 2020namskra.is
- SíðaHæfniviðmið fyrir rafiðngreinar
- PDFBæklingur um raunfærnimatFræðslumiðstöð atvinnulífsins
- VefurLög um framhaldsfræðslu
- VefurReglugerð um framhaldsfræðslu
Við fylgjum þér í gegnum allt ferlið
- Alma Sif KristjánsdóttirVerkefnastjóri ráðgjafar og raunfærnimatsalmasif@rafmennt.is540 0171
- Ingi BekkVerkefnastjóri miðlunar, tækni og skapandi greinaingi@rafmennt.is540 0169