Ertu í hljóði? – Raunfærnimat í hljóðtækni
Verkefnið „Ertu í hljóði?“ er unnið í samstarfi við Skerpu, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Tækniskólann.
Raunfærnimatið er á móti færnikröfum sem faghópur úr ólíkum greinum hljóðtækni og hópur stjórnenda settu saman, með hliðsjón af námskrá í hljóðtækni (2020) og þeirri færni sem hljóðmenn þurfa að búa yfir í starfi.
Inntökuskilyrði
Þriggja ára starfsreynsla í greininni og 23 ára lágmarksaldur.
Hvernig þetta gengur
Þú sækir um rafrænt á Innu á umsóknarfresti. Eftir að honum lýkur mæta þátttakendur á kynningarfund á Teams þar sem verkefni ferlisins eru kynnt; þeir sem hafa áhuga á fundinum en hafa ekki sótt um geta haft samband við náms- og starfsráðgjafa. Ferlið í heild er lýst á síðunni Raunfærnimatsferlið.
Þegar öllum námsþáttum er fullnægt fá þátttakendur burtfararskírteini í hljóðtækni. Ekki er hægt að útskrifast frá Rafmennt.
Verkefnastjóri og náms- og starfsráðgjafi fylgja þér eftir í gegnum allt ferlið
- Ingi BekkVerkefnastjóri miðlunar, tækni og skapandi greinaingi@rafmennt.is540 0169
- Alma Sif KristjánsdóttirVerkefnastjóri ráðgjafar og raunfærnimatsalmasif@rafmennt.is540 0171