Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Raunfærnimatsferlið

Þegar þú hefur ákveðið að taka þátt í raunfærnimati fer eftirfarandi ferli af stað.

Undirbúningur

  1. Umsókn

    Þú fyllir út og sendir umsókn rafrænt á Innu.

  2. Kynningarfundur

    Þú mætir á kynningarfund þar sem verkefni ferlisins eru kynnt.

  3. Fundur með náms- og starfsráðgjafa

    Þú bókar og mætir á fund þar sem þú færð meðal annars aðstoð við gerð færnimöppu.

  4. Færnimappa

    Þú fyllir út færnimöppuna og skilar henni rafrænt á Innu.

  5. Gátlistafundur

    Farið er yfir gerð gátlista fyrir sjálfsmat á færni.

  6. Gátlisti

    Þú fyllir út gátlistann og skilar rafrænt á Innu.

  7. Fundur um sjálfsmatið

    Þú bókar og mætir á fund með fræðslufulltrúa um sjálfsmatið.

Raunfærnimatið

Metendur setja upp viðtalstíma með þátttakendum og þú mætir í matsviðtölin. Raunfærnimat byggist á samtali milli þín og metanda, sem er fagaðili í greininni, þar sem áhersla er lögð á að þú fáir tækifæri til að koma þekkingu þinni og færni á framfæri. Þú getur verið beðin/n um að sýna færni þína, fengið lýsingar á aðstæðum til að vinna úr, eða aðrar aðferðir sem gera færnina sýnilegri. Náms- og starfsráðgjafi getur setið í matsviðtölum þegar það á við.

Eftirfylgd

Allar niðurstöður úr matsviðtölum eru skráðar á Innu. Þú getur bókað tíma hjá náms- og starfsráðgjafa Rafmenntar sem fer yfir niðurstöðurnar með þér og ræðir næstu skref.

Lokamarkmið eftir greinum

Í stuði – rafiðngreinar

Matið er á móti námskrá, út frá hæfniviðmiðum áfanga í grunndeild og framhaldsnámi rafiðngreina. Þegar öllum námsþáttum er fullnægt fá þátttakendur rétt til að þreyta sveinspróf. Ekki er hægt að útskrifast frá Rafmennt; allir sem þreyta sveinspróf þurfa að hafa útskrifast úr skóla. Nánar um Ertu í stuði?

Í hljóði – hljóðtækni

Matið er á móti námskrá, út frá hæfniviðmiðum áfanga í hljóðtækni. Þegar öllum námsþáttum er fullnægt fá þátttakendur burtfararskírteini í hljóðtækni. Ekki er hægt að útskrifast frá Rafmennt. Nánar um Ertu í hljóði?

Í ljósi – viðburðalýsing

Matið er á móti færnikröfum sem faghópur úr ólíkum greinum viðburðalýsingar og hópur stjórnenda settu saman. Færni þeirra sem starfa við viðburðalýsingu var kortlögð út frá verkefnunum og hæfninni sem starfið krefst.

Í mynd – kvikmyndatækni

Matið er á móti námskrá, út frá hæfniviðmiðum áfanga í kvikmyndatækni. Þegar öllum námsþáttum er fullnægt fá þátttakendur burtfararskírteini í kvikmyndatækni frá Stúdíó Sýrlandi. Ekki er hægt að útskrifast frá Rafmennt.