Sveinspróf í rafvélavirkjun
Hvenær eru prófin?
Sveinspróf í rafvirkjun eru haldin í febrúar (viku 6) og júní (viku 23), ef næg þátttaka fæst.
Rafvélavirkjun er viðbótarnám við sveinspróf í rafvirkjun.
Umsóknarfrestur
Sveinspróf | Umsóknarfrestur |
|---|---|
Febrúar | 1. - 30. nóvember |
Júní | 1. - 31. mars |
Umsókn
Umsækjandi þarf að vera skráður úrskriftarefni eða vera útskrifaður úr náminu og hafa lokið vinnustaðanámi samkvæmt námssamningi. Með umsókn þarf að fylgja:
Afrit af brautskráningarskírteini úr skóla eða staðfesting frá skóla á útskrift á þessari önn.
Lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnustaðanámi.
Umsókn um gerð námssamnings
Fylgiskjöl með umsóknum um námssamninga:
Námsferilsyfirlit
Greiðsluyfirlit frá lífeyrissjóði
Mikilvægt er að umsókn sé útfyllt og að fylgiskjöl séu til staðar til að umsókn sé tekin gild.
Mögulegt er að senda inn umsóknina inn rafrænt og láta tölvupóstinn teljast sem undirskrift nemenda.
Umsjón með sveinsprófum í rafiðngreinum hefur Guðmundur S. Jónsson, gudmundurs@rafmennt.is
Umsjón með náms- og starfsþjálfunarsamningum hefur Alma Sif Kristjánsdóttir, almasif@rafmennt.is
Menntamálaráðuneytið setur reglugerðir um námssamninga og starfsþjálfun. Í reglugerðum þessum er fjallað um skyldur samningsaðila og þau skilyrði sem uppfylla þarf til að taka að sér kennslu nema á vinnustað og framkvæmd sveinsprófa.
Menntamálaráðuneytið, Rafmennt og sveinsprófsnefndir í rafiðnaði hafa gert með sér samning vegna umsýslu námssamninga í rafiðngreinum og sveinsprófa. Í samningi þessum er Rafmennt falin umsýsla sveinsprófa og eftirlit með gerð og framkvæmd námssamninga í rafiðngreinum. Þangað skulu öll erindi er varða nýja námssamninga berast, óskir um breytingar á námssamningum og umsóknir um sveinspróf.
Skráning
Eingöngu tekið við umsóknum í gegnum vefsíðu Rafmenntar.
Ekki er opið fyrir umsóknir í sveinspróf í rafvélavirkjun
Vegna persónulegra gagna er miðað við að neminn sendi sjálfur inn umsókn í sveinspróf.
Dagskrá Sveinsprófa í rafvélavirkjun
Kynningarfundur með sveinsprófsnefnd verður haldin (dagsetning auglýst síðar) á Stórhöfða 27 og á Microsoft Teams. Dagskrá auglýst síðar.
| Prófþáttur | Tími | Staður |
|---|---|---|
| Iðnteikning | 08:30 - 11:30 | Rafmennt, Stórhöfða 27 |
| Stýring | 13:00 - 15:00 | Rafmennt, Stórhöfða 27 |
| Verklegt próf | 08:30 - 15:30 | Rafvirki, Fossaleyni 2 |
| Prófsýning | 13:00 - 14:30 | Rafmennt, Stórhöfða 27 |
Umsjón
- Guðmundur S. JónssonUmsjón með sveinsprófum í rafiðngreinumgudmundurs@rafmennt.is540 0160
- Alma Sif KristjánsdóttirUmsjón með náms- og starfsþjálfunarsamningumalmasif@rafmennt.is