Sveinspróf í rafeindavirkjun
Sveinspróf í rafeindavirkjun eru haldin tvisvar á ári í lok skólaannar og eru samþætt lokaprófum á 6. og 7. önn í skólum sem kenna rafeindavirkjun.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur fyrir Sveinsprófin á vorönn verður 1. - 31. mars 2026
Skráning í sveinspróf
Eingöngu tekið við umsóknum í gegnum vefsíðu Rafmenntar
Búið er að loka fyrir umsóknir í sveinsprófin í maí 2026
Upplýsingar
Sveinspróf
Á 6. önn er sveinspróf í:
Smíði og hönnun SMH 203
Á 7. önn er sveinspróf í:
Fagteikningu FTK 301
Fjarskiptatækni FJS 303
Net og miðlun NOM 303
Rafeindabúnaði og mælingum RAB 303
Stafrænnitækni og sjálfvirkni STS 303
Rafeindavélfræði MEK 303
MEK (Mekatronic) /STT (Stýritækni og forritun) próftakar kynna verkefni og fá spurningar frá sveinsprófsnefnd. Próftökum verður raðað niður á tíma.
Vinnustaðarnám og rafræn ferilbók
Hér má nálgast kynningarmyndbönd og aðrar upplýsingar um rafræna ferilbók.
Upplýsingar um ferilbók hjá Nemastofu
Eldra fyrirkomulag
Ef þú laukst námi fyrir 2010, áður en sveinspróf voru samþætt lokaprófum 6. og 7. annar og óskar eftir að taka sveinspróf eftir eldra fyrirkomulagi, vinsamlega hafðu þá samband við skrifstofu Rafmennt.
Dagskrá sveinsprófa í Tækniskólanum Flatahrauni 12, Hafnarfirði
Dagskrá sveinsprófa í Tækniskólanum hefjast 7. maí 2026
| Prófþáttur | Dagsetning | Tími | Staður |
|---|---|---|---|
| SMÍH-B (Smíði og hönnun rafeindarása) | 7. maí | 09:00 | TH318 |
| MEKA (Mekatronic) /STTÆ (Stýritækni og forritun) | 7. maí | 13:00 | TH318 |
| FTK (Fagteikning veikstraums) | 8. maí | 09:00 | TH311 |
| RABM (Rafeindabúnaður og mælingar) | 11. maí | 09:00 | TH307 |
| FJST (Fjarskiptatækni) | 12. maí | 09:00 | TH307 |
| NET (Nettækni og miðlun) | 12. maí | 13:00 | TH310 / TH307 |
Dagskrá sveinsprófa í Verkmenntaskólanum á Akureyri
Dagskrá sveinsprófa í Verkmenntaskólanum á Akureyri verða auglýst síðar
| Prófþáttur | Dagsetning | Tími |
|---|---|---|
| RABM (Rafeindarásir og mælingar) | 9:00 - 11:00 | |
| FJST (Fjarskiptatækni) | 9:00 - 11:00 | |
| NET (Nettækni og miðlun) | 13:00 - 15:00 | |
| MEKA (Mekatronic) /STTÆ (Stýritækni og forritun) | 9:00 | |
| FTK (Fagteikning veikstraums) | 9:00 - 11:00 | |
| SMÍH-B (Smíði og hönnun rafeindarása) | Próf ekki á dagskrá |
Umsjón
- Guðmundur S. JónssonUmsjón með sveinsprófum í rafiðngreinumgudmundurs@rafmennt.is540 0160