Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Sveinspróf í rafvirkjun

Sveinspróf í rafvirkjunH26

Skráningu er lokið

Skráningarfrestur rann út 16. ágúst 2026. Prófin hefjast 5. október 2026 eftir 7 daga.

Hvenær eru prófin?

Sveinspróf í rafvirkjun eru haldin í febrúar (viku 6) og júní (viku 23) í Reykjavík og á Akureyri ef næg þátttaka fæst.

Umsóknarfrestur

Sveinspróf

Umsóknarfrestur

Febrúar

1. - 30. nóvember

Júní

1. - 31. mars

Upplýsingar

Sveinspróf í rafvirkjun skiptist upp í verklegan hluta og skriflegan hluta.

Verklegur hluti er raflagnir og stýringar (básinn) og mælingar.

Skriflegur hluti er íslenskur staðall, rafmangsfræði og raflagnateikning.

Nánari upplýsingar um sveinspróf og vinnustaðanám

Gögn sem eiga að fylgja með umsókn í sveinspróf

Eingöngu tekið við umsóknum í gegnum vefsíðu Rafmenntar.

Nemar sem ekki hafa gert formlegan námssamning eða lokið vinnustaðanámi samkvæmt eldra kerfi, eiga að nýta sér Rafræna ferilbók.

Rafræn ferilbók

Nemar sem hafa nýtt sér Rafræna ferilbók í sínu vinnustaðanámi, þurfa að skila eftirfarandi gögnum með umsókn í sveinspróf.

Með umsókn þarf að fylgja:

  1. Staðfesting meistara á vinnustaðanámi

  2. Afrit af brautskráningarskírteini úr skóla eða staðfesting frá skóla á útskrift á þessari önn.

  3. Staðfesting á að nemi sé skráður í rafræna ferilbók (leiðbeiningar)

Áður en sveinspróf hefst þarf að vera búið að ljúka vinnustaðanámi samkvæmt rafrænni ferilbók.

Staðfestingu frá skóla um að rafrænni ferilbók sé lokið þarf að senda á tölvupóstfangið: sveinsprof@rafmennt.is

Upplýsingar um ferilbók:

Undirbúningsnámskeið

ATH. ekki víst að það verði haldið undirbúningsnámskeið fyrir sveinsprófin í október 2026.

Undirbúningsnámskeið fyrir Sveinspróf í rafvirkjun eru haldin hjá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti, Tækniskólanum og Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Nánari upplýsingar og umsóknir eru hjá skólunum.

Umsókn í sveinspróf

Eingöngu tekið við umsóknum í gegnum vefsíðu RAFMENNTAR

Búið er að loka fyrir umsóknir í sveinspróf í október

Vegna persónulegra gagna er miðað við að neminn sendi sjálfur inn umsókn í sveinspróf.

Umsóknarfrestur fyrir Sveinspróf í febrúar er 1. - 30. nóvember

Dagskrá sveinsprófa í Reykjavík

Kynningarfundur með sveinsprófsnefnd fyrir sveinsprófin í október verður haldinn hjá Rafmennt Stórhöfða 27 og á Teams fimmtudaginn 24. september kl. 16:00-17:00. Prófin hefjast 5. október 2026.

PrófþátturDagsetningTímiStaður
Rafmagnsfræði, stýrikerfi og búnaður5. október08:30 - 11:00
Raflagnateikning5. október13:00 - 16:00
Íslenskur staðall ÍST HB 200:20246. október08:30 - 10:45
Mælingar hópur 16. október13:00 - 14:15
Mælingar hópur 26. október14:30 - 15:45
Mælingar hópur 36. október16:00 - 17:15
Mælingar hópur 46. október17:30 - 18:45
Mælingar hópur 57. október08:30 - 09:45
Verklegt próf- raflagnir og stýringar hópur 16. október10:00 - 19:15
Verklegt próf- raflagnir og stýringar hópur 27. október10:00 - 19:15
Verklegt próf- raflagnir og stýringar hópur 38. október10:00 - 19:15
Prófasýning6. nóvember13:00 - 14:00Stórhöfða 27, 1. hæð
Afhending sveinsbréfa18. september15:00 - 17:00Hótel Hilton í Reykjavík

Dagskrá sveinsprófa á Akureyri

Ekki verður haldið próf á Akureyri í október

PrófþátturDagsetningTímiStaður
Rafmagnsfræði, stýrikerfi og búnaður08:30 - 11:00
Raflagnateikning13:00 - 16:00
Íslenskur staðall ÍST HB 200:202408:30 - 10:45
Verklegt próf- raflagnir og stýringar hópur 110:00 - 19:15
Verklegt próf- raflagnir og stýringar hópur 210:00 - 19:15
Verklegt próf- raflagnir og stýringar hópur 310:00 - 19:15
Mælingar hópur 110:00 - 11:15
Mælingar hópur 211:30 - 12:45
Mælingar hópur 313:00 - 14:15
Mælingar hópur 414:30 - 15:45
Mælingar hópur 516:00 - 17:15
Prófasýning16:30 - 18:00Verkmenntaskólinn á Akureyri
Afhending sveinsbréfa25. september17:00 - 19:00Hofi á Akureyri

Umsjón