Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Ertu í stuði? – Raunfærnimat í rafiðngreinum

Verkefnið „Ertu í stuði?“ nær til þeirra sem hafa af einhverjum ástæðum ekki lokið námi sem þeir hófu í rafiðngreinum. Raunfærnimatið er á móti námskrá, út frá hæfniviðmiðum áfanga sem kenndir eru í grunndeild og fagnámi rafiðngreina, svo hægt sé að mæta þátttakendum hvar sem þeir eru staddir í náminu og hjálpa þeim að komast aftur af stað og ljúka því. Markmiðið er að þátttakendur afli sér réttinda til að þreyta sveinspróf.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Rafiðnaðarsamband Íslands, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Tækniskólann, Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Samtök rafverktaka, starfsgreinaráð í rafiðngreinum og Rafmennt.

Inntökuskilyrði

Þriggja ára starfsreynsla í greininni og 23 ára lágmarksaldur.

Hvernig þetta gengur

Þú sækir um rafrænt á Innu á umsóknarfresti. Eftir að honum lýkur mæta þátttakendur á kynningarfund á Teams þar sem verkefni ferlisins eru kynnt; þeir sem hafa áhuga á fundinum en hafa ekki sótt um geta haft samband við náms- og starfsráðgjafa. Ferlið í heild er lýst á síðunni Raunfærnimatsferlið.

Þegar öllum námsþáttum er fullnægt fá þátttakendur rétt til að þreyta sveinspróf. Ekki er hægt að útskrifast frá Rafmennt – útskriftin er úr skóla.

Náms- og starfsráðgjafi fylgir þér eftir í gegnum allt ferlið