Fjármál heimilsins FJLÆ04FJHE

Um námskeiðið
Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR
Fjármálalæsi stuðlar að bættri ákvarðanatöku í fjármálum með áherslu á sparnað og fyrirhyggju. Þetta námskeið snýst um að þátttakendur öðlist yfirsýn yfir tekjur og gjöld til að auðvelda þeim að ná markmiðum sínum og uppfylla drauma.
Um námskeiðið
Á þessu stafræna námskeiði um fjármál heimilsins er unnið með viðfangsefni sem hafa áhrif á heimilisbókhaldið út frá áhuga og þörfum hvers og eins.
Á námskeiðinu segja sérfræðingar frá og útskýra:
Heimilisbókhald
Launaseðil og skatta
Skatthlutfall og skattstofn
Lífeyrissjóði
Tryggingar
Verðbólgu
Í hverjum kafla námskeiðsins segja sérfræðingar frá þeim lykilatriðum sem þarft er að kunna. Verkefni og æfingar tengdar hverju atriði eru síðan lagðar fyrir til að tryggja skilning á viðfangsefninu.
Sérfræðingar á námskeiðinu koma frá lífeyrissjóðum, stéttarfélögum og Umboðsmanni skuldara. Þeir miðla af þekkingu sinni á tryggingum, verðbólgu og verðtryggingu.
Fyrir hverja er námskeiðið
Opni háskólinn í HR og Fjármálavit unnu saman að gerð námskeiðsins sem er öllum opið. Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur auki fjármálalæsi sitt og geti þannig tekið upplýstari ákvarðanir í fjármálum, með áherslu á sparnað og fyrirhyggju.
Námskeiðið er eitt af þremur um Fjármálalæsi, en þau eru:
Fjármál heimilisins
Sparnaður og fjárfestingar
Lán og lánshæfi
Námskeiðin eru fyrir þau sem vilja auka skilning sinn á þessum viðfangsefnum. Þeim er ætlað að byggja upp þekkingu þátttakenda á þeim viðfangsefnum sem þeir þurfa helst að styrkja þekkingu sína í.
Hægt er að kaupa hvert námskeið stakt eða kaupa þau saman í braut.
Skipulagið
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma sem hentar þeim.
Það er Kristján Arnarsson sem tekur á móti þátttakendum, segir frá skipulaginu og leiðir inn sérfræðingana sem segja frá og auka skilning okkar á ólíkum liðum í fjármálum heimila.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans í HR.
Hagnýtar upplýsingar
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Athugaðu hvort þú átt rétt á styrk til að sækja nám eða námskeið hjá þínu stéttarfélagi.
Félagsmenn Rafiðnaðarsambandsins sem greiða í endurmenntunarsjóð fá námskeiðsgjöld á lægsta verði.
Fleiri námskeið í fjármálalæsi eru í boði: Sparnaður og fjárfestingar, Lán og lánshæfi, og svo er hægt að taka þau öll saman á hagstæðara verði.
Tengd námskeið
Þetta námskeið er eitt af þremur um fjármálalæsi:
Eða taktu öll þrjú saman á hagstæðara verði.
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 24. sept. – 19. des.
- Tími
- Alltaf opið
- Staður
- Á netinu
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 15.900 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 5.570 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

