Sparnaður og fjárfestingar FJLÆ04SPFJ

Um námskeiðið
Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR
Ákvarðanir okkar um sparnað og fjárfestingar geta verið meðal stærstu og kannski mikilvægustu fjármálalegu ákvarðana sem við tökum á lífsleiðinni. Fjármálalæsi með áherslu á sparnað og fjárfestingar stuðlar að bættri ákvarðanatöku í fjármálum.
Á þessu námskeiði verður farið í grunnatriði og leitað skilnings á kjarnaþáttum þannig að sparnaður og fjárfestingar séu ekki framandi og fjarlæg viðfangsefni heldur frekar hefðbundinn partur af venjulegu lífi.
Um námskeiðið
Áhugi og löngun til að spara og fjárfesta kann að vera persónubundin og ástæðan kannski sú, við fyrstu sýn, að hvoru tveggja kann að virðast fjarlægt viðfangsefni. Þegar betur er að gáð geta sparnaður og fjárfestingar verið hversdagslegar og fyrirhafnarlausar ákvarðanir.
Námskeiðið skiptist í tvo meginkafla sem sérfræðingar segja frá og útskýra:
Bankareikningar og innistæður
Fjárfestingakostir
Í hverjum kafla námskeiðsins segja sérfræðingar frá þeim lykilatriðum sem þarft er að kunna. Verkefni og æfingar tengdar hverju atriði eru síðan lagðar fyrir til að tryggja skilning á viðfangsefninu.
Sérfræðingar á námskeiðinu koma frá lífeyrissjóðum og bönkum. Þeir miðla af þekkingu sinni á fjárfestingum og sparnaðarleiðum.
Meðal þeirra þekkingaratriða sem farið verður yfir eru fjárfestingar í sjóðum, hlutabréfum og fasteignum, auk þess sem rafmyntir verða kynntar.
Fyrir hverja er námskeiðið
Opni háskólinn í HR og Fjármálavit unnu saman að gerð námskeiðsins sem er öllum opið.
Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur geti aukið fjármálalæsi sitt og þannig tekið upplýstari ákvarðanir í fjármálum, með áherslu á sparnað og fyrirhyggju.
Námskeiðið er eitt af þremur um Fjármálalæsi, en þau eru:
Fjármál heimilisins
Sparnaður og fjárfestingar
Lán og lánshæfi
Námskeiðin eru fyrir þau sem vilja auka skilning sinn á þessum viðfangsefnum. Þeim er ætlað að byggja upp þekkingu þátttakenda á þeim viðfangsefnum sem þeir þurfa helst að styrkja þekkingu sína í.
Hægt er að kaupa hvert námskeið stakt eða kaupa þau saman í braut.
Skipulagið
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma sem hentar þeim.
Kristján Arnarsson tekur á móti þátttakendum, segir frá skipulaginu og leiðir inn sérfræðingana sem segja frá og auka skilning þátttakenda á sparnaði og fjárfestingum.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans í HR.
Hagnýtar upplýsingar
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Athugaðu hvort þú átt rétt á styrk til að sækja nám eða námskeið hjá þínu stéttarfélagi.
Félagsmenn Rafiðnaðarsambandsins sem greiða í endurmenntunarsjóð fá námskeiðsgjöld á lægsta verði.
Fleiri námskeið í fjármálalæsi eru í boði: Fjármál heimilsins, Lán og lánshæfi, og svo er hægt að taka þau öll saman á hagstæðara verði.
Tengd námskeið
Þetta námskeið er eitt af þremur um fjármálalæsi:
Eða taktu öll þrjú saman á hagstæðara verði.
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 24. sept. – 19. des.
- Tími
- Alltaf opið
- Staður
- Á netinu
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 15.900 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 5.570 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

