3D prentun í iðnaði ALMN14 3D-PRENT

Um námskeiðið
Námskeið í samstarfi við Iðuna - Fræðslusetur
Námskeiðið hentar öllum sem vilja kynnast 3D prentun frá grunni – sérstaklega iðnaðarfólki og tæknivæddum hugmyndasmiðum sem vilja nýta möguleika þrívíddarprentunar í starfi eða eigin verkefnum.
Á námskeiðinu eru kennd grunnatriði í þrívíddarprentun. Unnið er með allt ferlið í notkun 3D prentara, þ.e. umgengni og notkun prentarans, hönnun verkefna og tölvuvinnsla. Þátttakendur nota Fusion 360 teikniforritið, teikna hlut og prenta út, sækja verkefni á netið og prenta.
Þátttakendur setja upp prentara, Bambu Lab A1 Combo, nota hann í verkefnum og taka með heim í lok námskeiðs. Prentarinn er hluti af námskeiðsgjöldum. Tilgangurinn er að þátttakendur geti haldið áfram eftir að námskeiðinu lýkur og aukið þekkingu sína og getu í 3D prentun og 3D teikningu.
Á námskeiðinu er farið yfir
Uppsetningu og notkun á Bambu Lab A1 Combo og öðrum Bambu prenturum
Viðhald og umhirðu tækisins
Hönnun í Fusion 360 og undirbúning prentunar
Bambu Studio og OrcaSlicer hugbúnað sem notaður er til að undirbúa 3D módel fyrir prentun og helstu atriðin til að ná sem bestum árangri
Mismunandi efni til 3D prentunar og helstu eiginleika þeirra
Notkun efna, viðhald og eftirvinnslu
3D skönnun og gæðastjórnun í prentun
Verklega kennslu á 3D prentara til að hefja prentun
Grunnatriði í tækniteiknun í Fusion 360, þar sem þátttakendur hanna 3D módel sem verður prentað
Kynningu á 3D skanna og hugbúnaði sem notaður er til eftirvinnslu á 3D skönnuðum hlutum
Reynsla af 3D prentun er ekki þörf, en þátttakendur þurfa nauðsynlega að hafa eigin fartölvu og góða mús til að vinna verkefni og setja upp hugbúnað sem kynntur verður á námskeiðinu.
Að loknu námskeiði á nemandi að
Geta sett saman og rekið eigin 3D prentara
Hannað einföld módel til prentunar
Geta valið viðeigandi efni og stillingar
Kunna að nýta prentun í eigin verkefnum eða vinnu
Þekkja kosti og galla 3D prentunar
Aðrar upplýsingar
Þátttakendur þurfa að koma með eigin fartölvu og góða tölvumús. Prentarinn (Bambu Lab A1 Combo) er innifalinn í námskeiðsgjaldi og fylgir nemanda að námskeiði loknu. Ekki er þörf á fyrri reynslu af 3D prentun. Gjafabréf og afsláttarkjör gilda ekki; félagsaðilar að endurmenntunarsjóði rafiðnaðarins fá niðurgreitt verð.
Ókeypis fræðsla um Onshape og notkun þess: idan.is/vidburdir/1171/onshape
Kennari: Jóhannes Páll Friðriksson
Möguleiki er á að láta prentara ganga upp í annan prentara — ef þess er óskað, vinsamlegast hafið samband við Rafmennt.
Dagskrá
Öll námskeið eru tveir kennsludagar, frá 15:00 til 21:00 — veldu hóp.
Hópur 1 - FULLT
Þriðjudagurinn 15. september 15:00 – 21:00 |
Fimmtudagurinn 17. september 15:00 – 21:00 |
Hópur 2 - FULLT
Þriðjudagurinn 22. september 15:00 – 21:00 |
Fimmtudagurinn 24. september 15:00 – 21:00 |
Hópur 3
Mánudagurinn 26. október 15:00 – 21:00 |
Miðvikudagurinn 28. október 15:00 – 21:00 |
Hópur 4
Þriðjudagurinn 24. nóvember 15:00 – 21:00 |
Fimmtudagurinn 26. nóvember 15:00 – 21:00 |
Hópur 5
Þriðjudagurinn 8. desember 15:00 – 21:00 |
Miðvikudagurinn 9. desember 15:00 – 21:00 |
Hópar og dagsetningar
Veldu þann hóp sem hentar þér. Sömu dagskrá er fylgt í öllum hópum.
Hópur 115.–17. septemberFullbókað
- Dagsetning
- 15.–17. september
- Tími
- kl. 15:00–21:00
- Staður
- Vatnagarðar 20
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Hópur 222.–24. septemberFullbókað
- Dagsetning
- 22.–24. september
- Tími
- kl. 15:00–21:00
- Staður
- Vatnagarðar 20
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Hópur 326.–28. október · Mánudagur og miðvikudagurFullbókað
- Dagsetning
- 26.–28. október · Mánudagur og miðvikudagur
- Tími
- kl. 15:00–21:00
- Staður
- Vatnagarðar 20
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Hópur 424.–26. nóvember · Þriðjudagur og fimmtudagurFullbókað
- Dagsetning
- 24.–26. nóvember · Þriðjudagur og fimmtudagur
- Tími
- kl. 15:00–21:00
- Staður
- Vatnagarðar 20
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Hópur 5
- Dagsetning
- 8.–9. desember · Þriðjudagur og miðvikudagur
- Tími
- kl. 15:00–21:00
- Staður
- Vatnagarðar 20
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 195.000 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 99.900 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

