Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni
Almenn námskeiðH2026N

Hjólaviðgerðir ALMN10HJÓL

Um námskeiðið

Viltu öðlast sjálfstraust í að annast hjólið þitt í öruggu umhverfi og góðum félagsskap? Eða rifja upp gamla takta?
Þá gæti þetta námskeið hentað þér.

Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendum kleift að öðlast grunnskilning á virkni og viðhaldi reiðhjóla.
Lögð er áhersla á að námskeiðið sé aðgengilegt, einstaklingsmiðað og opið öllum – óháð fyrri reynslu.

Engin forkunnátta er nauðsynleg, en þátttakendur þurfa að geta lyft hjólinu sínu í viðgerðastand.
Hver og einn kemur með sitt eigið hjól og vinnur að því á eigin hraða.

Fyrirkomulag námskeiðsins

Námskeiðið er þrjú kvöld, fyrsta kvöldið samanstendur af fræðslufyrirlestrum og undirbúningi fyrir almennt viðhald reiðhjóla ásamt verklegri þjálfun. Seinni tvö kvöldin samanstanda fyrst og fremst af verklegri kennslu og þjálfun.

Eftir afhendingu námskeiðsgagna fær hver þátttakandi sína vinnustöð. Leiðbeinandi gengur á milli og veitir aðstoð eftir þörfum.

Æskilegt er að þátttakendur komi með gírahjól í nothæfu ástandi (ekki hjól sem hafa staðið óhreyfð utandyra í langan tíma). Hjól með innbyggðum gírum henta síður fyrir þetta námskeið.

Innifalið í námskeiðsgjaldi

  • Notkun á verkfærum og búnaði

  • Öryggisbúnaður (hlífðargleraugu og einnota hanskar)

  • Grunnvarahlutir (barkar, vírar, vírendar)

  • Olíur og smurefni

  • Létt kvöldsnarl

Aðrir íhlutir og varahlutir eru ekki innifalin í verði, en reynt verður að útvega þá eftir bestu getu, í samráði við þátttakendur og leiðbeinanda.

Við skráningu er æskilegt að gefa upp hvaða hjól unnið verður með – eða hvort óskað sé eftir að leiðbeinandi útvegi hjól.

Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að geta sinnt grunnviðhaldi hjóla heimilisins. Þeir munu einnig geta framkvæmt einfalda öryggisskoðun og metið viðgerðarþörf.

Vert er að benda á að það eru aðeins 6 pláss á þessu námskeiði, svo hægt sé að sinna hverjum einum sem best.

Dagskrá

Þrjú kvöld. Fyrsta kvöldið fer í fræðslu og verklega þjálfun, seinni tvö í verklega kennslu. Koma þarf með hjól í öll kvöldin.

Þriðjudagurinn 15. september

Miðvikudagurinn 16. september

Fimmtudagurinn 17. september

Umsagnir nemenda

„Hugi hefur augljóslega gífurlegan áhuga á öllu sem viðkemur hjólum og mikla þekkingu. Það sem ég tók helst frá námskeiðinu var aukið öryggi varðandi handtök"

„Frábært námskeið. Mögulega væri hægt að hafa aðeins meiri strúktúr - eitt tekið fyrir í einu. En erfitt þegar fólk er á mismunandi stað að vinna í mismunandi hlutum."

„Hugi stóð sig ágætlega, hann var virkur, skemmtilegur og mjög hjálplegur og aðstaðan alveg frábær.."

Kennari

  • Hugi Jónsson

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 115.–17. septemberFullbókað
    Dagsetning
    15.–17. september
    Tími
    kl. 17:00–21:00
    Staður
    Stórhöfði 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð39.900 kr.
RSÍ endurmenntun14.900 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband