Microsoft Copilot UPTÆ03Microsoft Copilot

Um námskeiðið
Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR
Viltu læra hvernig þú getur sparað tíma, aukið afköst og fengið betri innsýn í gögn og verkefni með hjálp gervigreindar? Á þessu námskeiði kynnum við Copilot, snjallan aðstoðarmann sem er innbyggður í Microsoft 365 hugbúnaðinn – eins og Word, Excel, Outlook og Teams.
Á námskeiðinu lærir þú m.a.:
HvernigCopilot virkar í Microsoft 365 Við förum yfir hvernig Copilot nýtir gervigreind til að aðstoða þig við að skrifa texta, greina gögn, búa til samantektir, svara tölvupósti og margt fleira innan þeirra forrita sem þú notar daglega.
Að nota Copilot á íslensku – hvernig það skilur og skrifar íslenskan texta (og hvenær er betra að nota ensku)
Hvernig þú getur sparað tíma og aukið afköst
Þú getur nýtt Copilot til að draga saman fundargerðir, búa til drög að skjölum, greina gögn í Excel og jafnvel skrifa svör við tölvupósti – allt á örskotsstundu.Hagnýt dæmi og æfingar
Við skoðum raunveruleg dæmi og æfum hvernig á að nýta Copilot í mismunandi verkefnum, hvort sem þú fæst við stjórnun, kennslu, skrif eða gagnavinnslu.
Fyrir hverja er námskeiðið
Fyrir alla sem vinna í Microsoft 365 umhverfi og vilja nýta gervigreind til að auðvelda sér vinnuna og bæta afköst – óháð tæknikunnáttu.
Skipulagið
Námskeiðið er kennt í staðarnámi í Opna háskólanum
Vinsamlega athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Hópar og dagsetningar
Veldu þann hóp sem hentar þér. Sömu dagskrá er fylgt í öllum hópum.
Hópur 1
- Dagsetning
- 18. september · Föstudagur
- Tími
- kl. 09:00–12:00
- Staður
- Opni Háskólinn - Menntavegi 1
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Hópur 2
- Dagsetning
- 6. nóvember · Föstudagur
- Tími
- kl. 09:00–12:00
- Staður
- Opni Háskólinn - Menntavegi 1
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 29.900 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 10.200 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

