Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni
Almenn námskeiðH2026N

Vinna í hæð (VN) ÖRYG02HÆÐ

Um námskeiðið

Námskeið í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf.

Námskeiðið er kennt í fjarfundi gegnum Teams.

Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum og sýndur er fjöldi mynda og myndbanda af raunverulegum aðstæðum.

Hvað er vinna í hæð?

Farið er yfir hvernig má vinna í hæð á öruggan hátt. Áhættumat við vinnu í hæð þarf að
fara fram nokkru áður en vinnan hefst.

Á námskeiðinu er m.a. fjallað um handrið og hlera, röraverkpalla og nýlega reglugerð um þá, trévinnupalla, hjólapalla, lyftiverkpalla, hengiverkpalla, skæralyftur og að lyfta fólki með vinnuvélum, t.d. spjótum, krönum og lyfturum. Einnig er fjallað um stiga, tröppur, fallbelti og línur.

Að lokum er fjallað um skráningu, tilkynningu og tölfræði fallslysa.

Hópar og dagsetningar

Veldu þann hóp sem hentar þér. Sömu dagskrá er fylgt í öllum hópum.

  1. Hópur 2

    Dagsetning
    19. október · Mánudagur
    Tími
    kl. 13:00–15:30
    Staður
    Google Meets
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
  2. Hópur 3

    Dagsetning
    30. nóvember · Mánudagur
    Tími
    kl. 13:00–15:30
    Staður
    Google Meet
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð26.900 kr.
RSÍ endurmenntun9.415 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband