Verkstjóranámskeið (VN) ALMN03VERKST

Um námskeiðið
Námskeið í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf.
Námskeiðið er kennt í fjarfundi gegnum Teams.
Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum og sýndur er fjöldi mynda og myndbanda af raunverulegum aðstæðum.
Hver er verkstjóri samkvæmt vinnuverndarlögunum?
Hvaða ábyrgð og skyldur hvíla á verkstjóra varðandi vinnuverndar- og öryggismál?
Vinnuverndarlögin og reglugerð um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum er kynnt.
Fjallað verður um mikilvægi þess að verkstjóri sé leiðandi í vinnuverndarstarfi og öryggismenningu vinnustaðarins.
Farið verður yfir hvað skiptir mestu máli fyrir verkstjóra að vita s.s. framkvæmd vinnuverndarstarfs, áhættumat,
skráning og tilkynning vinnuslysa ásamt þremur stigum forvarna vegna vinnuslysa.
Einnig verður komið inn á ábyrgð verksjóra á vinnuumhverfinu almennt t.d. hávaða, lýsingu, innilofti, notkun efna og véla.
Að lokum verður fjallað stuttlega um mikilvægi verksjóra varðandi andlegt og félagslegt vinnuumhverfi, einelti og áreitni.
Hópar og dagsetningar
Veldu þann hóp sem hentar þér. Sömu dagskrá er fylgt í öllum hópum.
Hópur 1
- Dagsetning
- 12. október · Mánudagur
- Tími
- kl. 13:00–15:00
- Staður
- Google Meet
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Hópur 2
- Dagsetning
- 7. desember · Mánudagur
- Tími
- kl. 13:00–1500
- Staður
- Google Meet
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 23.400 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 8.190 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

