Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni
TæknifólkH2026N

Tæknileg verkefnastjórnun viðburða og skapandi greina MVST08VIÐSVIÐ

Um námskeiðið

Námskeiðið er sett saman til að veita þér innsýn og grunnþekkingu sem þarf til að stýra flóknum verkefnum á skilvirkan og faglegan hátt – allt frá fyrstu hugmynd að afhendingu og uppgjöri. Á námskeiðinu kynnumst við lykilverkfærum eins og heilaga þríhyrningnum (scope–time–cost), Gantt- og WBS-uppsetningum, áhættumati og breytingastjórnun sem tryggja fullkomna yfirsýn og stöðugan framgang verkefna til að hámarka nýtingu tíma og peninga.

Með raunhæfum dæmum úr viðburðageiranum og alþjóðlega gæðastaðla til hliðsjónar (IPMA, PMI, PRINCE2, Agile/Scrum) lærir þú hvernig á að virkja teymi, efla opið samskiptaumhverfi og hámarka sköpunarkraft í tæknilega krefjandi og kviku umhverfi. Við förum yfir mikilværi væntingastjórnunar ásamt teymismyndanir og annmarka þeirra og skoðum hvernig við getum verið hvetjandi en agaðir leiðtogar í senn.

Í hópverkefnum og verkefnaæfingum færðu svo tækifæri til að æfa þig í hverju skrefi með leiðsögn – frá undirbúningi fyrstu hugmyndar og skipulagi tímaáætlunar, yfir í framkvæmd og lokafrágang.

Þekkingarviðmið

  • Skilningur á verkefnastjórnun – Nemandi getur útskýrt hvað felst í verkefni og verkefnastjórnun, þar á meðal helstu takmarkanir (tími, kostnaður, umfang) og tilgang verkefna í samhengi við virðisaukasköpun.

  • Hæfni í áætlunargerð og þarfagreiningu – Nemandi getur greint þarfir og sett fram tíma- og kostnaðaráætlanir, skilgreint „scope“ verkefna og unnið með algeng verkfæri úr kerfum eins og IPMA.

  • Færni í teymisvinnu og leiðtogahæfni – Nemandi getur lýst einkennum góðra og slakra teyma, skipulagt verkefnateymi með tilliti til þarfagreiningar og tilætlaðs árangurs.

  • Að beita árangursríkum samskiptaleiðum – Nemandi þekkir mismunandi samskiptamynstur, getur metið áhrif þeirra á framvindu verkefna og tileinkað sér ákveðna og árangursmiðaða samskiptahætti.

  • Framkvæmd og eftirfylgni verkefna – Nemandi getur stýrt framvindu verkefna, fylgst með vörðum og árangursmælikvörðum og brugðist við frávikum með markvissum hætti.

  • Lok, greining og lærdómur – Nemandi getur unnið uppgjör, metið árangur og dregið lærdóm úr verkefnum til að bæta vinnulag og ferla í framtíðinni.

Leikniviðmið

  • Uppbygging og eðli verkefna

  • Mat og áætlanagerð

  • Nálgun teymismyndunar og samskipti

  • Vörður og eftirfylgni.

Námsmat

Námskeiðið endar með lokaverkefni til endurgjafar með staðfestingu á námskeiðslokum.

Upplýsingar

Kennari á námskeiðinu er G. Orri Rósenkranz verkefnastjóri sem hefur áralanga reynslu af tæknilegri hönnun, skipulagningu og verkefnastjórn viðburða af öllum stærðum og gerðum.

Tæknileg verkefnastjórnun viðburða

Kennarar

  • Guðmundur Orri R. Sævarsson
  • Ingi Bekk Jóhannesson

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    26. nóvember · Þriðjudagur
    Tími
    kl. 09:00–16:00
    Staður
    Stórhöfði 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð31.200 kr.
RSÍ endurmenntun11.640 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband