Grunnur í rigging RIGG24BASIC

Um námskeiðið
Námskeiðslýsing
Á þessu grunnnámskeiði í rigging fá þátttakendur kennslu í meðferð sérhæfðs rigging búnaðar, öðlast færni og þekkingu svo sem á álags dreifingu þyngdar, notkun keðjutalía og keðjumótora, gerð áhættumats, vinnu í hæð, notkun fallvarna og fleira tengdum tímabundnum burðarvirkjum.
Þekkingarviðmið
Skilja tilgang og mikilvægi áhættumats á vinnusvæði og geta útskýrt meginreglur þess.
Þekkja helstu atriði í löggjöf ESB/Bretlands sem snúa að skipulagi, stjórnun, eftirliti og kröfum við tímabundin burðarvirki og vinnu í hæð.
Skilja hugtakið vinna í hæð, stigveldi varna, fallstuðla og kröfur um skoðun búnaðar.
Þekkja grundvallarhugtök í merkingu vinnusvæðis fyrir uppsetningu.
Skilja eiginleika og notkun mismunandi hífibúnaðar m.a. stroffur, augu, stálvíra og keðja.
Þekkja helstu hnútategundir og tengiaðferðir ásamt öryggisatriða tengdum þeim.
Skilja meginatriði útreikninga á tímabundnum burðarvirkjum, þ.m.t. áhrif horna, krafta, núnings, vefja og burðargetu.
Þekkja mismunandi endafestingar stálvíra (SWR) og kröfur um uppsetningu og skoðun þeirra.
Skilja samsetningu og burðargetu trussa, áhrif þríhyrninga, skástífa og tenginga.
Þekkja LOLER-kröfur og ábyrgð hæfs aðila við skipulagningu og framkvæmd tímabundinna burðarvirkja.
Skilja notkun mótora, fösun, keðjupoka og agaðs verklags til að koma í veg fyrir skemmdir.
Skilja meginreglur um aukahleðslur, dreifara (spreaders), annarskonar festinga og afleiðinga bilana.
Skilja hugtök um álagsdreifingu, varafestingar og krafta í hanafótum og keðjukerfum.
Skilja mikilvægi eftirlits, gátlista og öruggrar lyftingar/lækkunar eftir að uppsetningu er lokið.
Leikniviðmið
Framkvæmt áhættumat á vinnusvæði og greint helstu hættur.
Lesið úr vinnuteikningum og merkt vinnusvæði nákvæmlega með réttum viðmiðum og mælingum.
Framkvæmt fornotkunarskoðun á búnaði og greint galla eða óeðlilegt slit.
Bundið og notað hnúta á öruggan hátt í raunverulegum rigging-aðstæðum.
Beitt grunnreglum hífingar við val og uppsetningu stroffa og búnaðar.
Sett saman og skoðað SWR-endafestingar samkvæmt kröfum.
Samsett og meðhöndlað tröss á öruggan hátt, með réttri röðun, tengingum og varúð gegn skemmdum.
Framkvæmt rigging út frá teikningum og aðlagað breytingum á burðarkerfi.
Unnið örugglega með mótora, keðjur og keðjupoka og beitt réttum vinnubrögðum við notkun.
Framkvæmt hengingu á tössum (þríhyrning, ferning osfrv) með réttum hornum og spennu.
Bætt við tröss-hliðum og breytt kerfi til að tryggja stöðugleika.
Sett upp dreifara og aðrar festingar og metið áhrif aukahleðslu.
Framkvæmt örugga lyftingu og lækkun, fylgt gátlista og unnið undir viðeigandi eftirliti.
Útskýrt áhrif á álag og burð þegar upp koma bilanir í kerfi.
Tekið niður búnað á öruggan hátt og gengið frá honum þannig að hann sé tilbúinn til næstu notkunar.
Námsmat
Námskeiðið endar á lokaprófi sem gildir til einkunnar og staðfestingar á námskeiðslokum.
Upplýsingar
Kennari námskeiðsins er Chris Higgs frá Total Solutions sem hefur áratuga reynslu í uppsetningu tímabundinna burðarvirkja og námskeiðshaldi tengdu því.
Námskeiðið er 3 dagar að lengd.
Kennari
- Chris Higgs
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 14.–16. október
- Tími
- kl. 10:00–17:00
- Staður
- Sýrland Vatnagörðum - Stúdíó B
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 275.000 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 125.000 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

