Tilboðsgerð í opinberum útboðum ALMN06TILB

Um námskeiðið
Námskeiðslýsing
Námskeiðið veitir hagnýta innsýn í opinbert útboðsferli frá auglýsingu til samningsgerðar, með áherslu á lestur og skilning útboðsgagna, hæfiskröfur og mismunandi matsforsendur. Þátttakendur læra að greina lágmarkskröfur, forðast algeng mistök í tilboðsgerð og gagnaskilum, móta markvissar fyrirspurnir og bregðast við óskýrleika í skilmálum. Námskeiðið hentar þeim sem koma að gerð tilboða í útboðum og vilja auka líkur á gildum og samkeppnishæfum tilboðum.
Þekkingarviðmið
Skilja og þekkja almennt útboðsferli, frá auglýsingu til samnings
Kunna að lesa í hæfiskröfur og hvernig þær eru uppfylltar
Greina útboðsgögn með tilliti til lágmarkskrafna til tilboða
Greina samkeppnina og lesa í tilboð annarra aðila
Skilja mismunandi matslíkön ef verð er ekki eina matsatriðið
Læra að forðast algeng mistök bæði við tilboðsgerð og gagnaskil
Koma auga á óskýrleika í skilmálum og hvernig á að bregðast við þeim
Formun fyrirspurna á fyrirspurnarfresti
Leikniviðmið
Rakið og útskýrt helstu skref í opinberu útboðsferli, frá auglýsingu útboðs til samningsgerðar.
Lesið og túlkað hæfiskröfur útboðsgagna og metið hvort og hvernig fyrirtæki uppfyllir þær.
Greint útboðsgögn með sérstakri áherslu á lágmarkskröfur, útilokunarskilyrði og kröfur til tilboða.
Metið samkeppnisstöðu sína, greint líklega samkeppnisaðila og lesið í niðurstöður og uppbyggingu tilboða annarra aðila að útboði loknu.
Skilið mismunandi matslíkön, þar sem fleiri þættir en verð ráða vali tilboðs, svo sem gæði, afhendingartími og mannauður.
Forðast algeng mistök í tilboðsgerð og gagnaskilum
Greint óskýrleika, mótsagnir eða áhættu í skilmálum útboða og metið viðeigandi viðbrögð.
Mótað skýrar og markvissar fyrirspurnir á fyrirspurnarfresti útboða.
Upplýsingar
Kennari námskeiðsins er Ólafur Steingrímsson starfandi skrifstofustjóri hjá innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar (nú Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar). Ólafur hefur 12 ára reynslu af opinberum innkaupum og þar áður reynslu sem innkaupastjóri á einkamarkaðnum. Ólafur hefur starfað sem ráðgjafi á sviði útboðsmála og sérhæfir sig í rýni útboðsgagna og gerð matslíkana.
Þátttakendur komi með fartölvur á námskeiðið og jafnvel útboðslýsingar sem þeir hafa áskotnast frá eldri verkefnum.
Námsmat
Námskeiðinu líkur með stuttu verkefni sem metið er til einkunnar.
Kennari
- Ólafur Steingrímsson
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 2
- Dagsetning
- 20. október
- Tími
- kl. 09:00–14:00
- Staður
- Stórhöfði 27
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 31.200 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 10.920 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

