Gunnnámskeið vinnuvéla (VN) VINN80GRUNN

Um námskeiðið
Námskeið í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf.
Stundum kallað „Stóra námskeiðið"
Námskeiðið veitir bókleg réttindi á allar stærðir og gerðir vinnuvéla sem eru réttindaskyldar á Íslandi. Íslensk réttindi eru viðurkennd víðast hvar í Evrópu.
Námskeiðið fer 99% fram í fjarnámi, aðeins lokaprófið er í kennslustofu hjá Rafmennt, á vinnustöðum eða í fjarnámsmiðstöð eftir samkomulagi. Allir sem eru orðnir 16 ára geta tekið námskeiðið en til að fá fullgild vinnuvélaréttindi verður viðkomandi að vera orðinn 17 ára og hafa bílpróf.
Þátttakendur geta byrjað á námskeiðinu þegar þeir vilja og lært þegar þeir vilja. Hægt er að horfa á námsefnið og leysa verkefni eins oft og hver vill.
Námskeiðið byggist á stuttum fyrirlestrum, ítarefni, verkefnum sem eru krossaspurningar og krossaprófum. Það þarf að leysa verkefnin og standast prófin til að geta haldið áfram á námskeiðinu. Skólinn hvetur nemendur til að halda sig að náminu og ljúka að jafnaði 1–4 köflum á dag.
Að námskeiðinu loknu geta þátttakendur hafið verklegt nám á allar gerðir réttindaskyldra vinnuvéla undir leiðsögn leiðbeinanda sem hefur kennsluréttindi. Að verklegri þjálfun lokinni er óskað eftir prófdómara frá Vinnueftirlitinu. Vinnueftirlitið gefur út vinnuvélaskírteini. Öll verkleg þjálfun og próf fara fram á vinnustöðum.
Uppbygging námskeiðsins
Kynning, vinnuverndarlög, reglur og reglugerðir
Vinnuverndarstarf og sálfélagslegt vinnuumhverfi — Próf úr köflum 1 og 2
Hættuleg efni, inniloft og loftræsting, hávaði og lýsing
Vélfræði, vökvafræði, rafgeymar og hleðsluklefar fyrir rafgeyma
Eðlisfræði, uppstilling og stöðugleiki vinnuvéla, ásláttarbúnaður — Próf úr köflum 3 til 5
Hífivír, stjórnbúnaður krana, að hífa fólk með krana og merkjakerfi fyrir kranastjórn
Byggingakranar og hafnarkranar í skráningarflokki A
Hleðslukranar í skráningarflokkum B og P
Brúkranar í skráningarflokki C
Steypudælukranar og körfukranar í skráningarflokki D — Próf úr köflum 6 til 10
Öryggi við skurðgröft
Gröfur og traktorsgröfur í skráningarflokki E
Ámokstursskóflur í skráningarflokki F
Jarðýtur í skráningarflokki G
Vegheflar í skráningarflokki H
Jarðvinnuvélar undir 4 tonnum og dráttarvélar í skráningarflokki I — Próf úr köflum 11 til 16
Lyftarar og lyftitæki í skráningarflokkum J og K
Að lyfta fólki með lyftara — Próf úr köflum 17 og 18
Valtar, útlagningarvélar og fræsarar í skráningarflokkum L og M — Próf úr kafla 19
Lokaorð
Bóklegt lokapróf
Bókleg lokapróf eru haldin hjá Rafmennt, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík.
Sjá lista yfir næstu próftökudagsetningar í "Dagskrá"-kassanum hér til hliðar.
Dagskrá – próftökudagar
Námskeiðið sjálft er á eigin hraða — þessar dagsetningar eru fyrir bóklega lokaprófið eitt og sér, kl. 16:00.
September
9. september |
23. september |
Október
7. október |
21. október |
Nóvember
11. nóvember |
25. nóvember |
Desember
16. desember |
Janúar 2027
6. janúar |
20. janúar |
Gott að vita
Fyrirkomulag kennslu: Fjarnám, myndbandsverkefni
Námsmat: Lokapróf
Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 1. okt. – 20. des. · Miðvikudagur
- Tími
- Alltaf opið
- Staður
- Google Meets
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 73.000 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 25.550 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

