Drónaflug og myndvinnsla MYNDV08Drónafl&myndv

Um námskeiðið
Drónar hafa á síðustu árum orðið eitt mikilvægasta verkfæri í nútíma mynd- og myndbandsgerð. Þeir eru notaðir í fjölmiðlum, markaðsefni, kvikmyndagerð, mælingum, ferðamennsku og persónulegum verkefnum. Með auknu aðgengi að öflugum drónum fylgja einnig skýrar reglur, ábyrgð og tæknileg atriði sem mikilvægt er að þekkja.
Á þessu tveggja daga námskeiði fá þátttakendur bæði traustan grunn í notkun dróna og hagnýta þekkingu í vinnslu þess myndefnis sem þeir taka upp.
Markmið námskeiðs
Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að:
Hafa góðan skilning á helstu tegundum dróna og notkunarmöguleikum þeirra
Þekkja helstu reglur um drónaflug, hvaða drónar krefjast leyfa og prófa og hverjir ekki
Vita hvaða atriði þarf að hafa í huga við öruggt og vandað drónaflug
Geta skipulagt og framkvæmt einfaldar drónamyndatökur
Kunna grunnatriði í vinnslu drónamyndbands, þar á meðal litgreiningu, klippingu og samsetningu hljóðs og myndar
Fyrirkomulag og innihald
Námskeiðið er tvö skipti og skiptist í fyrirlestra fyrri daginn um undirstöðuatriði við notkun á drónum og myndatöku. Seinni dagurinn fer vinnslu myndefnis sem nemendur koma með ásamt fyrirlestrum um myndvinnslu.
Dagur 1 – Grunnur, reglur og praktísk atriði
Fyrri dagurinn er helgaður undirstöðuatriðum á reglum drónaflugs, notkun og myndatöku.
Farið verður meðal annars yfir:
Kynningu á drónum og breytingum á þeim síðustu árin
Helstu tegundir dróna og notkunarsvið
Reglur um drónaflug:
Hvaða drónar krefjast leyfa og/eða prófa
Hvaða drónar eru undanþegnir leyfisskyldu
Ábyrgð flugmanns og öryggissjónarmið
Hvað þarf að hafa í huga fyrir flug:
Aðstæður, umhverfi og veður
Öryggi fólks og eigna
Algeng mistök og hvað ber að varast
Verkefni:
Í lok dags fá þátttakendur verkefni um að taka upp einfalt myndefni með dróna (mynd eða myndband) og koma með það til vinnslu á degi 2.
Dagur 2 – Myndvinnsla og frágangur
Seinni dagurinn byggir áfram á grunninum og færist yfir í vinnslu og frágang drónamyndbands.
Farið verður yfir:
Stutta yfirferð á lykilatriðum úr degi 1
Skipulag og val á myndefni, flokkun á myndefni
Vinnsla á dróna ljósmyndum og myndböndum:
Litgreining og grunnlitun á RAW/myndefni
Klipping og samsetning myndefnis
Samspil hljóðs og myndar
Hagnýt ráð um frágang og útflutning myndefnis
Unnið verður með myndefni þátttakenda eftir því sem kostur er, þannig að seinni námskeiðsdagurinn verði sem mest verklegur og raunhæfur.
Þátttakendur geta mætt með sinn eigin dróna, þó ekki sé á dagskrá að fljúga þeim á námskeiðinu.
Kennari er Björn Steinbekk – sjá nánar á steinbekk.com
Innifalið í námsgjöldum er léttur kvöldverður
Upptaka af fræðslufundinum um drónaflug er nú aðgengileg — horfa hér
Dagskrá
Tveggja daga námskeið. Fyrri dagurinn fer í grunnatriði og reglur, sá seinni í myndvinnslu og frágang.
Fimmtudagurinn 1. október 17:00 – 21:00 |
Fimmtudagurinn 8. október 17:00 – 21:00 |
Niðurstöður könnunar síðasta námskeiðs
100% þátttakenda í könnun voru ánægðir eða mjög ánægðir með námskeiðið
100% þátttakenda í könnun sögðust mæla með þessu námskeið fyrir áhugasama
Námskeiðið uppfyllti væntingar allra þátttkanda í könnun með tilliti til námskeiðislýsingar
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 1.–8. október · Fimmtudagar
- Tími
- kl. 17:00–21:00
- Staður
- Stórhöfða 21
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 31.500 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 13.500 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

