Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni
Almenn námskeiðH2026N

Vinna í lokuðu rými (VN) ÖRYG01LOKRÝ

Um námskeiðið

Námskeið í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf.

Námskeiðið er kennt í fjarfundi gegnum Meet.

Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum og sýndur er fjöldi mynda af raunverulegum aðstæðum.

Hvað er lokað rými og hvaða hættur geta skapast þar?

Fjallað verður um fimm hættur í lokuðu rými, súrefnisleysi, of mikið súrefni, sprengifimar lofttegundir, hættulegar lofttegundir og ryk. Hvenær og hvernig á að framkvæma áhættumat vegna vinnu í lokuðu rými?
Hvaða búnaður og tæki eiga að vera til staðar? Hvaða neyðarbúnaður á að vera til staðar til að bjarga fólki úr lokuðu rými. Hvenær verður að gefa út gaseyðingarvottorð og hver má gefa það út? Kynntur verður gátlisti sem gott er að
fylla út áður en vinna hefst í lokuðu rými. Að lokum verður farið yfir mikilvægi lúguvaktar og lúgumanna.

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 2

    Dagsetning
    8. desember · Þriðjudagur
    Tími
    kl. 13:00–15:00
    Staður
    Google Meet
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð23.800 kr.
RSÍ endurmenntun7.980 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband