Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni
Almenn námskeið · TæknifólkH2026N

Rafdreifing fyrir viðburði RAFL04VIÐB

Um námskeiðið

Námskeiðslýsing

Kynntir verða helstu íhlutir rafdreifikerfa, þar á meðal kaplar, tenglar, rafmagnsdreifitöflur og varnarbúnaður. Farið verður yfir rétta meðferð búnaðar, val á viðeigandi lausnum og mikilvægi vandaðrar uppsetningar til að tryggja öruggan rekstur viðburða.

Þátttakendur læra að meta og reikna út orkuþörf mismunandi viðburða, greina álagsþætti og skipuleggja álagsdreifingu þannig að rafkerfið nýtist sem best. Einnig verður fjallað um mismunandi tegundir álags, svo sem hljóðkerfi, ljósabúnað, myndbúnað, veitingabúnað og annan tæknibúnað sem algengur er á viðburðum.

Sérstök áhersla verður lögð á rafmagnsöryggi og bestu starfsvenjur. Farið verður yfir áhættumat, val á viðeigandi vörnum og þær áskoranir sem geta skapast við uppsetningu utandyra, meðal annars vegna veðurskilyrða, raka og annarra umhverfisþátta.

Helstu efnisþættir námskeiðsins

  • Uppbygging og hönnun tímabundinna rafdreifikerfa.

  • Meðferð og uppsetning kapla, tengla og rafmagnsdreifitaflna.

  • Útreikningar á orkuþörf og álagsdreifingu.

  • Mismunandi tegundir rafálags og áhrif þeirra á hönnun kerfa.

  • Val og notkun varnarbúnaðar, öryggja og lekastraumsrofa.

  • Jarðtengingar, ground loops og bilanaleit tengd þeim.

  • Rafmagnsöryggi á viðburðasvæðum innandyra og utandyra.

  • Reglugerðir, staðlar og ábyrgð þeirra sem koma að uppsetningu rafdreifikerfa.

  • Skipulagning, prófanir og gangsetning kerfa fyrir viðburði.

  • Algengar bilanir og lausnir í tímabundnum rafkerfum.

Þekkingar- og leikniviðmið

Að námskeiði loknu munu þátttakendur hafa betri skilning á því hvernig hanna, setja upp og reka örugg og skilvirk rafdreifikerfi fyrir viðburði, ásamt því að geta metið orkuþörf, dreift álagi á réttan hátt og lágmarkað áhættu tengda rafmagnsöryggi.

Kennari

  • Gunnar Gunnarsson

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    17. nóvember
    Tími
    kl. 09:00–16:00
    Staður
    Stórhöfði 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð31.200 kr.
RSÍ endurmenntun10.920 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband