Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni
Almenn námskeið · EndurmenntunH2026N

Power BI frá A til Ö (OH) UPTÆ18Power BI

Um námskeiðið

Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR

Á þessu námskeiði verður farið í alla kerfishluta Power BI og möguleikar lausnarinnar kannaðir til hlítar. Power BI frá Microsoft hentar vel til að búa til gagnvirkar skýrslur og mælaborð og dreifa til notenda, en Power BI býður líka upp á gagnamótun og gerð greiningarteninga.

Námskeiðið nýtist öllum þeim sem vilja setja fram gögn með myndrænum hætti og nútímalegum aðferðum. Það byggir á virkri þátttöku nemenda og nýtist öllum þeim sem vinna með tölugögn.

Efnisþættir námskeiðsins

Power BI – Framsetning og dreifing

Farið verður í hönnun og gerð gagnvirkra skýrslna og mælaborða í Power BI Desktop en einnig yfir þá möguleika sem skýjalausnin býður upp á til að birta og greina gögn og dreifa skýrslum. Kannaðar verða margvíslegar aðferðir til að setja fram gögn á myndrænan hátt.

Power BI – Greiningarmódel og DAX forritun

Fjallað verður um teningagerð og einfalda DAX forritun í Power BI. Farið verður yfir innlestur á ýmiss konar gögnum og hvernig maður tengir saman margskonar gagnatöflur. Því næst er DAX forritun kennd: eigin mælieiningar og greiningarvíddir, töfluföll, dagsetningaföll, strengjaföll, CALCULATE() og fleira.

Power BI – Gagnamótun

Power Query (Transform) er bæði til sem ókeypis viðbót í Excel (Get and transform) og hluti af Power BI Desktop (Transform). Power Query frá Microsoft er tól sem umbreytir hráum gögnum í greinanleg gögn — auðvelt í notkun, hraðvirkt og getur tengst næstum hvaða gagnalind sem er. Það sér um hreinsun, samþættingu og samtengingu gagna, og gefur kost á að vista og endurnýta fyrirspurnir og verkferla sem oft eru keyrðir.

Meðal þess sem er kennt

  • Notkun og virkni skýrslna og þá sérstaklega gagnvirkni gagnastýringa og tengingar á milli skýrslna

  • Skýrsluhönnun og gagnabirting – hvað virkar og hvað ber að varast

  • Að tengjast einföldum gagnalindum með Power BI Desktop og birta í skýrslum

  • Útfærsla á aðgangsstýringum og notkun Power BI Service til að dreifa greiningarskýrslum

  • Staðlaðar gagnasýnir (e. visuals) sem fylgja með Power BI og aðfengnar gagnasýnir sem útvíkka möguleika forritsins (e. custom visuals)

  • Birting landfræðigagna og þeir möguleikar sem Power BI býður upp á, bæði með stöðluðum og aðfengnum gagnasýnum

  • Greining gagna á mannamáli (e. natural language queries) og hvernig best er að haga fyrirspurnum til að fá réttar niðurstöður

  • Leiðir til að auðvelda aðgengi að upplýsingum með „fyrirspurnum á mannamáli"

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur aflað sér þekkingar á ýmsum útbreiddum gagnalindum og algengum aðferðum við að móta gögn og gera þau greiningarhæf.

Skipulagið

Mikilvægt er að allir mæti með nýjustu útgáfu af Power BI Desktop uppsetta, sem má nálgast hér án endurgjalds.

Námskeiðið er kennt í staðarnámi í Opna háskólanum frá kl. 09:00 – 15:00.

Vinsamlega athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Hagnýtar upplýsingar

Þátttakendur þurfa að vinna á sinni eigin PC-tölvu. Tölvan þarf að vera með Windows stýrikerfi og nýjustu útgáfu Power BI Desktop uppsetta.

Kennari

Grímur Sæmundsson hefur starfað sem ráðgjafi í viðskiptagreind undanfarin 20 ár, meðal annars hjá Applicon, Umoe Consulting og Deloitte Consulting. Grímur hefur langa reynslu af kennslu og þjálfun, bæði í tengslum við innleiðingar á viðskiptagreind og sjálfstæð námskeið. Hann er með BA í heimspeki, er kerfisfræðingur frá HR og með MBA.

Dagskrá

Þrjú skipti, 09:00 – 15:00 hvern dag — veldu Námskeið 1 eða Námskeið 2.

Námskeið 1

Fimmtudagurinn 3. sept. – Framsetning og dreifing

Fimmtudagurinn 12. sept. – Greiningarmódel og DAX forritun

Fimmtudagurinn 17. sept. – Gagnamótun

Námskeið 2

Fimmtudagurinn 5. nóv. – Framsetning og dreifing

Fimmtudagurinn 12. nóv. – Greiningarmódel og DAX forritun

Fimmtudagurinn 19. nóv. – Gagnamótun

Umsagnir

„Allt til fyrirmyndar, leiðbeinandi var góður að útskýra og fór á þægilegum hraða yfir allt. Hann fór betur yfir atriði sem fólki fannst erfitt að skilja og passaði að halda ekki áfram í næsta atriði fyrr en meirihlutinn var farinn að skilja hvað hann var að kenna."

„Mjög hæfur og þægilegur leiðbeinandi. Eldklár og hokinn af reynslu. Alltaf tilbúinn að hlusta og leiðbeina. Einnig aðstoðarmaðurinn. Virkilega þægilegur og hjálpsamur."

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 2

    Dagsetning
    5.–19. nóvember · Fimmtudagar
    Tími
    kl. 09:00–15:00
    Staður
    Opni Háskólinn - Menntavegur 1
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð107.000 kr.
RSÍ endurmenntun39.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband