Öryggismenning (VN) ÖRYG02MENN

Um námskeiðið
Námskeið í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf.
Miklar framfarir hafa náðst síðustu áratugi í efnislegu og tæknilegu öryggi á vinnustöðum t.d. við hönnun vinnustaða, véla og tækja. Til þess að ná lengra í öryggismálum og fækka vinnuslysum enn frekar þarf að beita nýjum aðferðum.
Það þarf að skoða sálræna og félaglega þætti í samspili við vinnuskipulag og vinnuumhverfi.
Á þessu námskeiði er gerð grein fyrir því hvernig hægt er að innleiða öryggismenningu á vinnustað, þ.e. breyta hugsun og hegðun starfsmanna og stjórnenda til langs tíma.Efnið er byggt á sænskri aðferðafræði sem kallast „Byggt á öryggi“ en gefin var út bæklingur árið 2009 með sama heiti. Hugmyndafræði „Safety II“ verður einnig kynnt.
Uppbygging
Námskeið Vinnuverndarskóla Íslands byggjast upp á vendinámi. Þegar nemendur skrá sig á námskeiðið fá þeir senda fyrirlestra og lesefni sem þeir kynna sér áður en þeir koma í kennslustofu. Nemendur mæta undirbúnir í kennslustofu. Þar byrjar kennari á því að fara stuttlega yfir aðalatriði efnisins, svo eru umræður og unnin verða verkefni.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er hugsað fyrir lengra komna í vinnuverndarmálum, t.d. öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði, verkstjóra og stjórnendur. Gert er ráð fyrir því að nemendur þekki hlutverk öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða og kunni góð skil á áhættumati.
Ávinningur
Þátttakendur kynnast nýrri hugmyndafræði til að auka öryggi á vinnustaðnum og fækka vinnuslysum.
Lengd
Undirbúningur heima eða á vinnustað og 2 klst. í kennslustofu.
Fjarkennslan fer fram í rauntíma í gegnum fjarfundarbúnað
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kjerúlf, forstöðumaður Vinnuverndarskóla Íslands. Áður en námskeiðið hefst verður opnað fyrir aðgang þátttakenda að kennslukerfi og fyrirlestrum á netinu, og er ætlast til að þátttakendur hafi kynnt sér efnið áður en farið verður í kennslustofu. Innifalið eru öll námsgögn, aðgangur að kennslukerfi og fyrirlestrum, ásamt vinnu í kennslustofu.
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 9. desember · Miðvikudagur
- Tími
- kl. 13:00–15:00
- Staður
- Google Meet
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 22.500 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 7.875 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

