Merking vinnusvæða. ÖRYG08Merk vinnusv em

Um námskeiðið
Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR
Um námskeiðið
Staðnám með möguleika á fjarnámi
Námskeiðið er ætlað þeim sem eru með 5–10 ára gömul skírteini og hafa jafnframt unnið talsvert við vinnusvæðamerkingar síðastliðin ár og telja sig ekki þurfa upprifjun á grunnatriðum.
Yfirferðin á þessu námskeiði er það sama og kennt er á seinni degi á tveggja daga/fullu námskeiði Merking vinnusvæða. Kennsluáætlun – Endurnýjun réttinda
Það sem farið er yfir á fyrri degi á tveggja daga/fullu námskeiði í Merkingu vinnusvæða, en ekki á þessu Endurnýjun réttinda – Merking vinnusvæða námskeiði, má sjá hér: Kennsluáætlun – Fyrri dagur á grunnnámskeiði
Mikilvægt er að hafa í huga að sömu kröfur eru gerðar á prófi (hliðstætt próf, krossapróf og verkefni) hvort sem um er að ræða eins dags (endurnýjun réttinda) eða tveggja daga námskeið (grunnnámskeið).
Réttindapróf
Í lok námskeiðsins þreyta þátttakendur próf til réttinda. Þeir þátttakendur sem standast prófið fá prófskírteini sem gildir í 5 ár.
Prófað er úr öllu því námsefni sem farið er yfir í fullu tveggja daga námskeiði.
Þeir nemendur sem velja styttra námskeiðið munu fá afhent öll kennslugögn og æfingapróf sem notuð eru á fyrri degi í fullu námskeiði.
Um merkingu vinnusvæða
Í reglugerð um merkingu og aðrar öryggisráðstafanir vegna framkvæmda á og við veg, sem kom út árið 2009, var meðal annars kveðið á um að Vegagerðinni væri falið að skrifa nánari reglur um útfærslu og framkvæmd vinnusvæðamerkinga. Í reglunum eru strangar kröfur um þekkingu og réttindi þeirra sem koma að þessum málum. Þar kemur fram að allir þeir sem koma að merkingu vinnusvæða frá Vegagerðinni og Reykjavíkurborg, og þeir verktakar, hönnuðir og eftirlitsmenn sem tengjast verkefnum á þeirra vegum, þurfa að hafa sótt námskeiðið Merking vinnusvæða og lokið prófi eins og gerðar eru kröfur um í reglugerðinni.
Fyrir hverja er námskeiðið
Námskeiðið er ætlað þeim sem eru með 5–10 ára gömul skírteini sem renna út 1. mars nk. og hafa jafnframt unnið talsvert við vinnusvæðamerkingar síðastliðin ár og telja sig ekki þurfa upprifjun á grunnatriðum.
Skipulagið
Kennsla fer fram sem staðarnám. Möguleiki er á að fylgjast með kennslunni í gegnum Zoom fjarfundabúnað í rauntíma, fyrir þá sem komast ekki á staðinn, en mælt er með því að mæta á staðinn. Kennslan er ekki tekin upp.
Hagnýtar upplýsingar
Þátttakendur fá aðgang að kennslukerfi HR þar sem allt kennsluefnið er. Nauðsynlegt er að taka með sér eigin tölvu á námskeiðið með aðgengi að PowerPoint forritinu.
Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Athugaðu hvort þú átt rétt á styrk til að sækja nám eða námskeið hjá þínu stéttarfélagi.
Dagskrá
Eitt skipti í boði.
Miðvikudagurinn 4. nóvember 09:00 – 17:00 |
Leiðbeinendur
Ylfa Rakel Ólafsdóttir
Verkefnastjóri – Vegagerðin
Björgvin Rafn Sigurðarson
Deildarstjóri afnota- og eftirlits – Reykjavíkurborg
Höskuldur Tryggvason
Verkefnastjóri – Vegagerðin
Víkingur Guðmundsson
Sérfræðingur, úttektir og eftirfylgni – Vegagerðin
Stefán Þór Pétursson
Verkfræðingur – Vegagerðin
Bjarni Rúnar Ingvarsson
Samgönguverkfræðingur – Reykjavíkurborg
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 4. nóvember · Miðvikudagur
- Tími
- kl. 09:00–17:00
- Staður
- Opni Háskólinn - Menntavegur 1
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 62.000 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 22.000 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

