Merking vinnusvæða. ÖRYG16Merk vinnusv

Um námskeiðið
Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR
Um námskeiðið
Staðnám með möguleika á fjarnámi
Námskeið um hönnun og útfærslu á merkingum fyrir umferð vegna framkvæmda. Það er mikilvægt að slíkar merkingar séu samræmdar, bæði gagnvart starfsmönnum og vegfarendum.
Á þessu námskeiði er farið yfir helstu þætti sem þarf að hafa í huga á vinnusvæðum, eins og umferðarstjórn, lagaumhverfi, öryggisbúnað og merkingar, eftirlit og fleira.
Starfsmenn Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar sem koma að merkingu vinnusvæða, ásamt verktökum, hönnuðum og eftirlitsmönnum sem tengjast verkefnum á þeirra vegum, verða að ljúka þessu námskeiði. Í lok námskeiðs þreyta þátttakendur próf til réttinda.
Efnisþættir námskeiðsins
Lög og reglugerðir, flokkun vega og gatna, umferðarmerki, flokkun og tegundir, umferðarstjórn
Vinnusvæðið, umgengnisreglur, framkvæmd, ábyrgð og eftirlit
Rammareglur um merkingar vinnusvæðis / framkvæmdasvæðis
Varnar- og merkingarbúnaður, ljósabúnaður, merkjavagnar, vinnutæki og öryggisbúnaður
Lagnavinna o.fl., leyfisskyldar framkvæmdir á vegsvæðum
Vinnustaðamerkingar á tveggja til sex akreina vegum og við staðbundna/hreyfanlega vinnu
Magntaka, kostnaðaráætlanir, gæðaúttektir og févíti
Fyrirkomulag
Allt kennsluefni er í rafrænu formi og prófin líka. Þátttakendur fá aðgang að kennslukerfi háskólans og þurfa því að hafa afnot af tölvu með aðgengi að PowerPoint forritinu.
Námið er hannað sem staðarnám. Fyrir þau sem búa úti á landi bjóðum við upp á að fylgjast með kennslunni í gegnum Zoom. Í slíkum tilfellum fer kennslan samtímis fram í kennslustofu og í gegnum Zoom fjarfundarbúnað í rauntíma. Kennslan er ekki tekin upp.
Réttindapróf
Í lok námskeiðsins þreyta þátttakendur próf til réttinda. Þeir þátttakendur sem standast prófið fá prófskírteini sem gildir í 5 ár. Þeir sem eru með skírteini eldra en 5 ára þurfa að endurnýja sín á þessu námskeiði, en boðið er upp á styttra námskeið til endurnýjunar réttinda fyrir þá sem eru með skírteini síðan fyrir 5 árum eða skemur.
Um merkingu vinnusvæða
Í reglugerð um merkingu og aðrar öryggisráðstafanir vegna framkvæmda á og við veg, sem kom út árið 2009, var meðal annars kveðið á um að Vegagerðinni væri falið að skrifa nánari reglur um útfærslu og framkvæmd vinnusvæðamerkinga. Í reglunum eru strangar kröfur um þekkingu og réttindi þeirra sem koma að þessum málum. Þar kemur fram að allir þeir sem koma að merkingu vinnusvæða frá Vegagerðinni og Reykjavíkurborg, og þeir verktakar, hönnuðir og eftirlitsmenn sem tengjast verkefnum á þeirra vegum, þurfa að hafa sótt námskeiðið Merking vinnusvæða og lokið prófi eins og gerðar eru kröfur um í reglugerðinni.
Fyrir hverja er námskeiðið
Námskeiðið er ætlað þeim verkkaupum, hönnuðum, verktökum og eftirlitsmönnum sem á einn eða annan hátt koma að undirbúningi og framkvæmd vega- og gatnagerðarmannvirkja, svo og öðrum þeim stofnunum og fyrirtækjum sem vinna að framkvæmdum á eða við vegsvæði.
Skipulagið
Námið er 16 klst. og kennt er tvo daga í röð frá kl. 9–17.
Kennsla fer fram sem staðarnám. Möguleiki er á að fylgjast með kennslunni í gegnum Zoom fjarfundabúnað í rauntíma, fyrir þá sem komast ekki á staðinn, en mælt er með því að mæta á staðinn. Kennslan er ekki tekin upp. Vinsamlegast athugið að námskeiðið er haldið í Háskólanum í Reykjavík.
Hagnýtar upplýsingar
Þátttakendur fá aðgang að kennslukerfi HR þar sem allt kennsluefnið er. Nauðsynlegt er að taka með sér eigin tölvu á námskeiðið með aðgengi að PowerPoint forritinu.
Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Athugaðu hvort þú átt rétt á styrk til að sækja nám eða námskeið hjá þínu stéttarfélagi.
Dagskrá
Dagsetningar auglýstar síðar.
Leiðbeinendur
Ylfa Rakel Ólafsdóttir
Verkefnastjóri – Vegagerðin
Björgvin Rafn Sigurðarson
Deildarstjóri afnota- og eftirlits – Reykjavíkurborg
Höskuldur Tryggvason
Verkefnastjóri – Vegagerðin
Víkingur Guðmundsson
Sérfræðingur, úttektir og eftirfylgni – Vegagerðin
Stefán Þór Pétursson
Verkfræðingur – Vegagerðin
Bjarni Rúnar Ingvarsson
Samgönguverkfræðingur – Reykjavíkurborg
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 2.–3. nóvember · Mánudagur og þriðjudagur
- Tími
- kl. 09:00–17:00
- Staður
- Opni Háskólinn - Menntavegur 1
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 106.000 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 37.000 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

