Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni
Almenn námskeiðH2026N

Gunnnámskeið vinnuvéla (VN) VINN80GRUNN

Um námskeiðið

Námskeið í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf.

Stundum kallað „Stóra námskeiðið"

Námskeiðið veitir bókleg réttindi á allar stærðir og gerðir vinnuvéla sem eru réttindaskyldar á Íslandi. Íslensk réttindi eru viðurkennd víðast hvar í Evrópu.

Námskeiðið fer 99% fram í fjarnámi, aðeins lokaprófið er í kennslustofu hjá Rafmennt, á vinnustöðum eða í fjarnámsmiðstöð eftir samkomulagi. Allir sem eru orðnir 16 ára geta tekið námskeiðið en til að fá fullgild vinnuvélaréttindi verður viðkomandi að vera orðinn 17 ára og hafa bílpróf.

Þátttakendur geta byrjað á námskeiðinu þegar þeir vilja og lært þegar þeir vilja. Hægt er að horfa á námsefnið og leysa verkefni eins oft og hver vill.

Námskeiðið byggist á stuttum fyrirlestrum, ítarefni, verkefnum sem eru krossaspurningar og krossaprófum. Það þarf að leysa verkefnin og standast prófin til að geta haldið áfram á námskeiðinu. Skólinn hvetur nemendur til að halda sig að náminu og ljúka að jafnaði 1–4 köflum á dag.

Að námskeiðinu loknu geta þátttakendur hafið verklegt nám á allar gerðir réttindaskyldra vinnuvéla undir leiðsögn leiðbeinanda sem hefur kennsluréttindi. Að verklegri þjálfun lokinni er óskað eftir prófdómara frá Vinnueftirlitinu. Vinnueftirlitið gefur út vinnuvélaskírteini. Öll verkleg þjálfun og próf fara fram á vinnustöðum.

Uppbygging námskeiðsins

  1. Kynning, vinnuverndarlög, reglur og reglugerðir

  2. Vinnuverndarstarf og sálfélagslegt vinnuumhverfi — Próf úr köflum 1 og 2

  3. Hættuleg efni, inniloft og loftræsting, hávaði og lýsing

  4. Vélfræði, vökvafræði, rafgeymar og hleðsluklefar fyrir rafgeyma

  5. Eðlisfræði, uppstilling og stöðugleiki vinnuvéla, ásláttarbúnaður — Próf úr köflum 3 til 5

  6. Hífivír, stjórnbúnaður krana, að hífa fólk með krana og merkjakerfi fyrir kranastjórn

  7. Byggingakranar og hafnarkranar í skráningarflokki A

  8. Hleðslukranar í skráningarflokkum B og P

  9. Brúkranar í skráningarflokki C

  10. Steypudælukranar og körfukranar í skráningarflokki D — Próf úr köflum 6 til 10

  11. Öryggi við skurðgröft

  12. Gröfur og traktorsgröfur í skráningarflokki E

  13. Ámokstursskóflur í skráningarflokki F

  14. Jarðýtur í skráningarflokki G

  15. Vegheflar í skráningarflokki H

  16. Jarðvinnuvélar undir 4 tonnum og dráttarvélar í skráningarflokki I — Próf úr köflum 11 til 16

  17. Lyftarar og lyftitæki í skráningarflokkum J og K

  18. Að lyfta fólki með lyftara — Próf úr köflum 17 og 18

  19. Valtar, útlagningarvélar og fræsarar í skráningarflokkum L og M — Próf úr kafla 19

  20. Lokaorð

Bóklegt lokapróf

Bókleg lokapróf eru haldin hjá Rafmennt, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík.

Sjá lista yfir næstu próftökudagsetningar í "Dagskrá"-kassanum hér til hliðar.

Dagskrá – próftökudagar

Námskeiðið sjálft er á eigin hraða — þessar dagsetningar eru fyrir bóklega lokaprófið eitt og sér, kl. 16:00.

September

9. september

23. september

Október

7. október

21. október

Nóvember

11. nóvember

25. nóvember

Desember

16. desember

Janúar 2027

6. janúar

20. janúar

Gott að vita

Fyrirkomulag kennslu: Fjarnám, myndbandsverkefni

Námsmat: Lokapróf

Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    1. okt. – 20. des. · Miðvikudagur
    Tími
    Alltaf opið
    Staður
    Google Meets
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð73.000 kr.
RSÍ endurmenntun25.550 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband