Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni
Almenn námskeiðH2026N

Dagskrárgerð fyrir hlaðvarp og útvarp DAGS15Hlaðogútv

Um námskeiðið

Námskeið í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands

Á þessu námskeiði munu nemendur kynnast fjölbreyttum hliðum dagskrárgerðar fyrir útvarp og hlaðvarp. Kafað verður ofan í framleiðsluferlið, form og uppbyggingu, viðtalstækni, skrif fyrir hljóðlestur, samtalsstjórn o.fl. með hlustunardæmum úr öllum áttum. Að námskeiði loknu munu nemendur hafa aflað sér allra helstu upplýsinga til að stíga sín fyrstu skref í dagskrárgerð.

Á námskeiðinu verður kafað ofan í framleiðsluferli útvarps- og hlaðvarpsþátta. Hugað verður að hugmyndavinnu og uppbyggingu hljóðefnis sem og helstu aðferðum sem beitt er við framleiðslu þess eins og viðtalstækni og handritagerð. Farið verður á greinandi hátt yfir samsetningu þátta; skoðuð verða helstu tæki sem notuð eru við vinnsluna, klipping í forritum verður kennd sem og önnur hljóðvinnsla.

Í kennslustundum verður virk samhlustun þar sem hlustað verður á útvarps- og hlaðvarpsþætti og tekið eftir þeim hugtökum sem kennd eru en þátttakendum gefst einnig kostur á að þróa eigin hugmyndir að þáttum í gegnum námskeiðið og vinna stuttar æfingar sem hjálpa þeim að taka fyrstu skrefin í framleiðsluferli eigin þáttar.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Form og uppbyggingu hlaðvarps- og útvarpsþátta

  • Handritagerð

  • Viðtalstækni

  • Klippingu og hljóðvinnslu

  • Þróun hugmynda

  • Greiningu hljóðefnis

  • Raddbeitingu

  • Notkun á upptökutækjum

  • Samsetningu útvarps- og hlaðvarpsþátta

Ávinningur þinn

  • Skilningur á helstu byggingareiningum útvarps- og hlaðvarpsþátta

  • Þekking á helstu aðferðum og hugtökum þáttagerðar

  • Skilningur á virkni á klippiforritum og hljóðvinnslu

  • Innsýn í framleiðsluferli dagskrárgerðarmanna

  • Lærir að taka fyrstu skref í þróun eigin útvarps- eða hlaðvarpsefnis

Fyrir hverja

Námskeiðið hentar vel fyrir áhugafólk um útvarp og hlaðvarp og sérstaklega þau sem langar að læra að framleiða eigið efni. Þátttakendum mun gefast kostur á að skyggnast á bak við tjöldin og fræðast um hvernig útvarps- og hlaðvarpsþættir eru settir saman frá hugmynd til útsendingar. Ekki er nauðsynlegt að hafa mikla þekkingu á miðlunum fyrir námskeiðið.

Nánar um kennara

Tómas Ævar Ólafsson er með MA í heimspeki og ritlist og hefur fengist við útvarps- og hlaðvarpsgerð frá árinu 2017. Á ferli sínum hjá Rás 1 hefur hann framleitt þáttaraðir á borð við Öskju, Hvergiland, Ekkert skiptir máli og Ratsjá en einnig stýrt daglegum þáttum á borð við Víðsjá og Tengivagninn.

Annað

Ágætis ítarefni / eins konar Biblía hlaðvarpa / ekki nauðsynleg kaup:
Eric Nuzum. Make Noise: A Creator's Guide to Podcasting and Great Audio Storytelling. Bandaríkin: Workman Publishing Company, 2019.

Dagskrá

Vikulegir tímar, þrjár klukkustundir í senn. Fyrri hluti námskeiðsins verður í fyrirlestrarformi, í seinni hlutanum verða samræður og gerðar æfingar í hópum.

Fimmtudagurinn 15. október 19:00 – 22:00

Fimmtudagurinn 22. október 19:00 – 22:00

Fimmtudagurinn 29. október 19:00 – 22:00

Fimmtudagurinn 5. nóvember 19:00 – 22:00

Fimmtudagurinn 12. nóvember 19:00 – 22:00

Umsagnir nemenda

„Praktísk nálgun og góðar reynslusögur."

„Fjölbreytt og yfirgripsmikið námskeið og mikil þekking kennara á efninu."

„Ég fékk ágæta yfirsýn yfir það hvernig hlaðvörp eru byggð upp svo þau fái hlustun og ýmsa hagnýta punkta um tæknimál og fjármögnun."

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    15. okt. – 12. nóv. · Fimmtudagar
    Tími
    kl. 19:00–22:00
    Staður
    Dunhaga 7
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð98.900 kr.
RSÍ endurmenntun34.900 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband