Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni
Almenn námskeiðH2026N

3D skönnun og endurgerð hluta ALMN12 3D skönnun

Um námskeiðið

Námskeið í samstarfi við Iðuna - Fræðslusetur

Lærðu að skanna raunverulega hluti, umbreyta þeim í nákvæm þrívíddarlíkön og endurgera eða hanna íhluti út frá þeim.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað iðnaðarmönnum, hönnuðum, tæknifólki, viðhaldsaðilum, nemendum og öðrum sem vilja nýta 3D skönnun til að endurgera, breyta eða hanna íhluti fyrir framleiðslu, viðgerðir eða þrívíddarprentun.

Markmið

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skilning á helstu aðferðum við 3D skönnun og geti undirbúið hluti fyrir skönnun, unnið úr skanngögnum og endurskapað eða hannað íhluti út frá þeim.

Á námskeiðinu verður fjallað um

  • Helstu aðferðir við 3D skönnun, meðal annars leysiskönnun, structured light og photogrammetry

  • Styrkleika og takmarkanir mismunandi skannaðferða og val á aðferð eftir verkefnum

  • Undirbúning hluta fyrir skönnun og þá þætti sem hafa áhrif á nákvæmni niðurstaðna

  • Algeng mistök við undirbúning og framkvæmd 3D skönnunar

  • Skönnun raunverulegra hluta með 3D skanna

  • Photogrammetry með snjallsíma, t.d. með Polycam

  • Notkun skrifstofuskanna til að mæla og staðsetja einfaldari flata hluti

  • Gerð þrívíddarlíkans út frá 2–3 ljósmyndum og mælingum með skíðmáli, án hefðbundins 3D skanna

  • Úrvinnslu skanngagna og áframhaldandi vinnu með þau í CAD-hugbúnaði

  • Greiningu hluta í einföld grunnform (primitives) og endurteikningu þeirra í Onshape eða Fusion

  • Hönnun nýs íhlutar sem passar við skannaðan hlut, þrívíddarprentun hans og sannprófun á passun

  • Muninn á Fusion og Blender og hvenær hvort forrit hentar, meðal annars fyrir nákvæma vélhönnun og frjálsa líkanagerð

Að loknu námskeiði á nemandi að

  • Þekkja helstu aðferðir við 3D skönnun og útskýra helstu kosti þeirra og takmarkanir

  • Velja skannaðferð sem hentar viðfangsefni hverju sinni

  • Undirbúa hlut fyrir skönnun með tilliti til nákvæmni og gæða skanngagna

  • Framkvæma einfalda 3D skönnun og vinna úr skanngögnum

  • Búa til þrívíddarlíkan út frá ljósmyndum og mælingum

  • Greina skannaðan hlut niður í grunnform og endurteikna hann í CAD-hugbúnaði

  • Hanna íhlut sem passar við skannaðan eða endurgerðan hlut

  • Prenta út hannaðan íhlut og sannreyna passun hans

  • Greina á milli notkunarmöguleika Fusion og Blender og velja hugbúnað eftir eðli verkefnis

Aðrar upplýsingar

Engar sérstakar forkröfur eru gerðar, en grunnþekking á tölvunotkun og áhugi á hönnun eða þrívíddartækni er kostur.

Allur nauðsynlegur búnaður, 3D skannar og hugbúnaður eru til staðar á námskeiðinu. Þátttakendur vinna verkleg verkefni og fá tækifæri til að skanna hluti, vinna úr gögnum og prófa eigin hönnun með þrívíddarprentun.

Dagskrá

Þriggja daga námskeið, 4 klukkustundir hvert skipti — veldu þann hóp sem hentar.

Hópur 1

Mánudagurinn 9. nóvember 17:00 – 21:00

Þriðjudagurinn 10. nóvember 17:00 – 21:00

Miðvikudagurinn 11. nóvember 17:00 – 21:00

Hópur 2

Mánudagurinn 16. nóvember 17:00 – 21:00

Þriðjudagurinn 17. nóvember 17:00 – 21:00

Miðvikudagurinn 18. nóvember 17:00 – 21:00

Hópar og dagsetningar

Veldu þann hóp sem hentar þér. Sömu dagskrá er fylgt í öllum hópum.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    9.–11. nóvember
    Tími
    kl. 17:00–21:00
    Staður
    Vatnagarðar 20
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
  2. Hópur 2

    Dagsetning
    16.–18. nóvember
    Tími
    kl. 17:00–21:00
    Staður
    Vatnagarðar 20
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð85.000 kr.
RSÍ endurmenntun29.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband