Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni
Meistaraskóli rafvirkjaH2026M

Varmadælur og kælitækni MKÆL4MS02BA

Um námskeiðið

Kjarnanámskeið í Meistaraskóla rafvirkja

Varmadælur og kælitækni (MKÆL4MS02) - 2 einingar

Í námskeiðinu kynnast nemendur grundvallartækni varmaflutnings með kælitækni.

Farið er yfir varmadælingu sem tækni til hitunar húsa og kælingar rýma s.s. gagnavera og rafbúnaðarrýma þar sem hitamyndun er veruleg.

Einnig eru skoðaðir mismunandi valkostir orkugjafa til varmaflutnings, kaldir og heitir. Einnig læra nemendur helstu eðlisfræðihugtök sem tengjast kælitækninni eins og varmaleiðni, varmaflutning, eimun og þéttingu vökva. Þá kynnast nemendur helsta búnaði sem notaður er til frystingar og annars varmaflutnings og virkni hans. Nemendur læra um uppsetningu og viðhald minni kæli- og frystikerfa.

Áhersla er lögð á að nemandi þekki hugtökin kælingu og frystingu og að hann viti t.d. til hvers matvæli eru kæld eða fryst.

Kennari

  • Hlöðver Eggertsson

Hópar og dagsetningar

Veldu þann hóp sem hentar þér. Sömu dagskrá er fylgt í öllum hópum.

  1. Hópur 118.–20. september · Föstudag - Laugardag - SunnudagFullbókað
    Dagsetning
    18.–20. september · Föstudag - Laugardag - Sunnudag
    Tími
    kl. 08:30–16:30
    Staður
    Stórhöfða 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
  2. Hópur 216.–18. október · Föstudag, Laugardag, SunnudagFullbókað
    Dagsetning
    16.–18. október · Föstudag, Laugardag, Sunnudag
    Tími
    kl. 08:30–16:30
    Staður
    Stórhöfða 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

RSÍ endurmenntun25.200 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband