Brunaviðvörunarkerfi MÖRY4BB02BA

Um námskeiðið
Kjarnanámskeið í Meistaraskóla rafvirkja/Meistaraskóla rafeindavirkja
Viðfangsefni áfangans er um hina ýmsu íhluti brunaviðvörunarkerfa, eiginleika þeirra, notkunarsvið, lagnir og tengingar. Þá er fjallað um öryggis- og brunafræði, reglur um brunaviðvörunarkerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi slíkra kerfa. Fylgt er reglugerð um brunavarnir, einnig læra nemendur skil á brunahólfun mannvirkja, hinum ýmsu gerðum brunaþéttinga, eiginleikum þeirra, notkunarsviði og helstu reglum þar um.
Athugið: Til þess að standast námskeiðið til meistaranáms, þarf einkunnina 5.
Þátttakendur sem ljúka prófi með einkunnina 7, fá heimild til þess að starfa við brunaviðvörunarkerfi þar sem fyrir liggur starfsleyfi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) og eiga þá einnig kost á því að sækja um starfsleyfi sjálfir að fengnu meistarabréfi.
Eftir þetta námskeið hafa þátttakendur einnig heimild til þess að lagfæra brunaþéttingar eftir sjálfa sig og aðra iðnaðarmenn, (undir starfsleyfi).
Sjá frekari upplýsingar á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), Starfsleyfi þjónustuaðila brunavarna
Athugið: Þátttakendur námskeiða sem að nota Teams fjarfundarbúnað þurfa að vera í mynd til þess að fá viðurkenningu að þeim loknum.
Kennarar
- Guðmundur Gunnarsson
- Þórir Helgi Helgason
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 2
- Dagsetning
- 21.–23. september · Mánudag, Þriðjudag, Miðvikudag
- Tími
- kl. 08:30–16:30
- Staður
- Stórhöfða 27, Teams
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 72.000 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 25.200 kr. |
| SART | 61.200 kr. |
| Er í meistaraskóla | 14.400 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

