Reglugerðir og rafdreifikerfi MREG4MS06BA
Um námskeiðið
Til grundvallar í náminu eru þeir staðlar sem gilda um raflagnir og rafbúnað hverju sinni og leiðbeiningar sem með þeim fylgja. Í áfanganum auka nemendur þekkingu sína á raforkudreifikerfinu og einstökum hlutum þess, kynnast stöðlum og reglugerðum sem lúta að störfum rafiðnaðarmanna, læra að þekkja aðferðir til að verjast tjóni sem rafmagn getur haft á líf, heilsu og eignir manna, læra að gera prófanir og úttektir á veitukerfum, læra að annast skýrslugerð og skjalavörslu vegna prófana og úttekta á veitukerfum. Fjallað er um sögu raforkuflutnings, uppbyggingu veitukerfa, jafngildismyndir (TN-, TT-, og IT- kerfi). Kynntar eru reglugerðir og staðlar sem fjalla um veitukerfi og tæknilega tengiskilmála rafveitna. Fjallað er um orkuflutning, álagsstrauma, spennuföll og afltap í veitukerfum. Útskýrð er myndun og áhrif yfirstrauma, bilanastrauma og snertispennu. Fjallað er ítarlega um allar algengustu gerðir yfirstraumsvarna og eiginleika þeirra svo og aðferðir og búnað til varnar of hárri snertispennu. Farið er í útreikninga á skammhlaupsstraumum. Gerð er grein fyrir helstu öryggisráðstöfunum við viðhald á veitum.
Hópar og dagsetningar
Engir hópar eru opnir fyrir skráningu í augnablikinu. Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita þegar næsti hópur opnar.
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

