Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni
Meistaraskóli rafvirkja · Meistaraskóli rafeindavirkjaH2026M

Raflagnatækni MRAT4MS02BA

Um námskeiðið

Kjarnanámskeið í Meistaraskóla rafvirkja/Meistaraskóla rafeindavirkja

Raflagnatækni

Raflagnatækni MRAT4MS02 - 2 einingar

Fjarkennslan fer fram í rauntíma í gegnum fjarfundarbúnað

Viðfangsefni áfangans er um löggildingu rafverktaka, hvaða skyldur og réttindi fylgja löggildingu, hvaða verk eru tilkynningarskyld. Farið verður yfir rafmagnsöryggisgáttina og hvernig hún virkar, fyrir rafverktaka, rafveitur og skoðunarstofur. Nemendum verður kennt að hvernig er óskað eftir þjónustu frá rafveitum og hvernig þeir senda inn lokatilkynningar til HMS. Farið verður yfir ferlið við skoðanir á tilkynntum verkum, hvaða réttindi rafverktakarnir hafa gagnvart skoðunarstofum og HMS ásamt því hvernig skuli bregðast við athugasemdum á þeirra verkum, andmæli og úrlausnir. Að lokum verður farið yfir mælingar í neysluveitum, hver tilgangur þeirra er og hvaða aðstæður geti kallað á aðgerðir og/eða tilkynningar til dreifiveitu eða HMS ásamt spurningum frá nemendum.

Þá er fjallað um hina ýmsu ljósgjafa og tengingu þeirra og nemendur bæta þekkingu sína í lýsingartækni. Farið er m.a yfir helstu viðfangsefni lýsingarfræðinnar svo sem hugtökin og fræðin á bak við litarhitastig, litarendurgjöf, ljósmagn, glýju og ljóstækni verða rædd og áhersla verður lögð á að sýna hvernig LED ljósgjafinn hefur breytt hvernig hönnuðir, verktakar og framleiðendur vinna með ljósgjafa. Gömlu hefðbundnu ljósgjafarnir bornir saman við LED og farið í praktísk atriði eins og skynjun á ljósi í rými, efnisnotkun og endurkast. Hverju þarf að huga að þegar lýsing er hönnuð í ákveðin rými og hvað þarf að hafa í huga við sölu og uppsetningu ljósbúnaðar.

Nemendur læra að taka saman vinnu og efniskostnað verka með því að nota vef Ákvæðisvinnustofu rafiðna, þar sem einingarverð eru til fyrir vinnuliði nýlagna og hægt er að gera uppgjör ásamt efnislið. Ákvæðisvinnugrunnur er fyrir fram ákveðin tími fyrir ákveðið handverk, eins og að setja upp ljós , setja upp lagnaleiðir, tengja raflagnabúnað o.sv.frv.

Úr verður listi með tímaeiningum þar sem hægt er að telja einingafjölda fyrir unnin verk og margfalda með einingarverði sveina samkvæmt kjarasamning, til þess að sjá útkomu kostnaðar á verki.


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð: 72.000 -

SART: 61.200.-

RSÍ Endurmenntun: 25.200.-

Er í meistaraskóla: 14.400.

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið rafmennt (hjá) rafmennt . is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Kennarar

  • Eggert Þorgrímsson
  • Guðjón Leifur Sigurðsson
  • Óskar Frank Guðmundsson

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 129.–31. október · Fimmtudag, Föstudag, LaugardagFullbókað
    Dagsetning
    29.–31. október · Fimmtudag, Föstudag, Laugardag
    Tími
    kl. 08:30–16:30
    Staður
    Stórhöfða 27 Teams
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

RSÍ endurmenntun25.200 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband