Öryggis- og vinnuvistfræði MÖRY4VV01BA

Um námskeiðið
Kjarnanámskeið í Meistaraskóla rafvirkja/Meistaraskóla rafeindavirkja
Öryggis- og vinnuvistfræði MÖRY4VV01 - 1 eining
Fjarkennslan fer fram í rauntíma í gegnum fjarfundarbúnað
Viðfangsefni námskeiðsins er áhættumat starfa og vinnuvernd. Lögum samkvæmt ber atvinnurekandi
ábyrgð á að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað.
Á námskeiðinu læra nemendur um helstu þætti sem tengjast áhættumati, framkvæmd þess, gerð vinnuverndaráætlana og þeirra jákvæðu breytinga og þekkingu sem þessir þættir skila inn í fyrirtæki.
Einnig er fjallað um störf „kunnáttumanna“, þar sem farið yfir ábyrgðir, framkvæmd og samræmd vinnubrögð við rof og undirbúning vinnu við kerfishluta eða rekstrareiningar í raforkukerfum.
Farið er yfir ákvæði gildandi reglugerða varðandi vinnu við raforkuvirki og túlkun þeirra.
Sérstaklega er farið í gildandi verklagsreglur Mannvirkjastofnunar.
Fjallað er um helstu hættur af rafmagni og áhrif rafmagns á mannslíkamann ásamt því að farið er yfir rétt vinnubrögð í og við raforkuvirki stór og smá.
Kennarar
- Ásgerður Guðmundsdóttir
- Guðmundur Ingi Kjerúlf
- Kristján Jóhann Guðmundsson
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 14. nóvember · MiðvikudagFullbókað
- Dagsetning
- 4. nóvember · Miðvikudag
- Tími
- kl. 08:30–16:30
- Staður
- Stórhöfði 27, Teams
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| RSÍ endurmenntun | 10.920 kr. |
|---|
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →

