Gæðastjórnun og ISO 9001 í verktakastarfsemi
Rafmennt og Iðan fræðslusetur bjóða til hádegisfundar um gæðastjórnun og ISO 9001 vottun í verktakafyrirtækjum
Gott gæðakerfi getur stutt við faglegri rekstur, aukið gæði og ýtt undir stöðugar umbætur. Það kostar þó sitt. Innleiðing og viðhald krefjast þátttöku stjórnenda, tíma starfsfólks og fjárfestingar. Á fundinum verður rætt opinskátt hvort ávinningurinn standi undir kostnaðinum og hvernig fyrirtæki geta tryggt að kerfið nýtist í raun við stjórnun en verði ekki bara skjöl í möppu.
Fundurinn hentar stjórnendum, gæðastjórum og öðrum sem koma að rekstri verktaka- og iðnfyrirtækja.
Fyrirlesarar
- Eyjólfur Bjarnason
Eyjólfur er byggingatæknifræðingur frá Noregi. Hann hefur starfað sem öryggis- og gæðastjóri, ráðgjafi og bæjartæknifræðingur.
- Sigrún Melax
Sigrún er verkfræðingur sem unnið hefur við gæðastjórnun um árabil. Hún hefur víðtæka reynslu af fjölbreyttum hliðum gæðastjórnunar, svo sem uppsetningu, innleiðingu og rekstri gæðakerfa og virkniskoðunum.