Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Nám og störf í rafiðnaði

Nám í rafiðnaði er lykillinn að spennandi og fjölbreyttum störfum. Vefurinn straumlina.is er upplýsingavefur Rafiðnaðarsambands Íslands um menntun, störf og framtíðarhorfur í rafiðnaði.

Hvernig námið er byggt upp

Nám í rafiðngreinum hefst á sameiginlegu grunnnámi sem undirbýr nemendur fyrir fagnámið sem þeir velja sér síðar. Grunnnámið tekur að jafnaði fjórar annir og er samtals 120 einingar; það skiptist í almennar bóklegar greinar, fagbóklegar greinar og verklegar greinar. Að því loknu eiga nemendur að vera færir um að takast á við framhaldsgreinarnar og geta hafið vinnustaðanám.

Framhaldsgreinarnar að loknu grunnnámi eru rafeindavirkjun, rafveituvirkjun, rafvélavirkjun og rafvirkjun. Nám í þeim tekur að jafnaði átta annir og er samtals 260 einingar að grunnnáminu meðtöldu – einingafjöldi er lítillega breytilegur milli skóla. Náminu lýkur með sveinsprófi sem veitir réttindi til að starfa í greininni og opnar leið í meistaranám.

Skólar sem bjóða nám í rafiðngreinum

Skóli

Grunnnám

Rafvirkjun

Rafeindavirkjun

Rafveituvirkjun

Hljóðtækni

Kvikmyndatækni

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra

Fjölbrautaskóli Suðurlands

Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Fjölbrautaskóli Vesturlands, Akranesi

Tækniskólinn

Verkmenntaskólinn á Akureyri

Verkmenntaskóli Austurlands

Störfin

Störf í rafiðnaði eru fjölbreytt. Starfslýsingar fyrir rafiðn- og tæknigreinarnar eru á Næsta skrefi: rafeindavirkjun, rafveituvirkjun, rafvélavirkjun, rafvirkjun, hljóðtækni og hljóðhönnun.