Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Áhugasviðskönnun

Bendill er íslensk áhugasviðskönnun sem metur á hvaða sviðum starfsáhugi þinn liggur. Hún byggir á hugmyndafræði bandaríska sálfræðingsins John L. Holland, þar sem áhugasvið fólks er flokkað í sex svið og störfin á vinnumarkaði á sama hátt. Könnunin er rafræn og endurspeglar íslenskan vinnumarkað og námsframboðið hér á landi.

Bendill býður fjórar tegundir kannana fyrir ólíka aldurshópa; Bendill III og IV eru sniðnir að fullorðnum sem hyggja á háskólanám eða eru á vinnumarkaði.

Hvernig könnunin virkar

Þú svarar spurningum um hversu vel eða illa þér líkar athafnir tengdar störfum (t.d. að gera við bíl), námsgreinar (t.d. stærðfræði) og störf (t.d. bifvélavirki). Niðurstöðurnar liggja fyrir myndrænt um leið og öllu hefur verið svarað. Könnunin hjálpar þér að koma skipulagi á áhugasvið þín, ræða starfsáhuga þinn og eykur þannig sjálfsþekkingu.