Rafvirki sem vill verða rafeindavirki
Einstaklingur sem lokið hefur námi í rafvirkjun getur sótt um að þreyta sveinspróf í rafeindavirkjun eftir að hafa lokið námi í eftirfarandi áföngum.
Rafeindavirkjun er þriggja anna nám ofan á grunnnám rafiðna. Nemendur þurfa einnig að gera námssamning við löggiltan rafeindavirkjameistara um 30 vikna starfsþjálfun eða ljúka rafrænni ferilbók.
Námið er samtals 90–93 einingar* og starfsþjálfunin 30–50 einingar*.
Námsleið: samningsbundið nám
Áfangi | Einingar |
|---|---|
Fagteikning veikstraums | 3* |
Fjarskiptatækni | 15 |
Rafeindavélfræði | 15 |
Nettækni og miðlun | 15 |
Rafeindarásir og mælingar | 15 |
Smíði og hönnun rafeindarása | 15 |
Stýritækni og forritun | 15 |
Samtals | 90–93 |
*Breytilegt á milli skóla.