Raflagnateikning
Raflagnateikning 1 5 einingar
Megin áhersla áfangans felur í sér að nemendur tileinki sér lestur og teikningu raflagnateikninga. Þeir fá þjálfun í að teikna og lesa úr raflagnateikningum og lögð áhersla á lagnir að og með 63 Amper. Farið verður í staðalákvæði og öryggisþætti við frágang raflagnateikninga. Nemendur læra að rissa teikningu af raflögn. Þá er þeim kennt að gera magntöluskrá og meta kostnað við lagningu raflagna samkvæmt raflagnateikningu.
Raflagnateikning 2 5 einingar
Nemendur öðlist vald á teikningalestri á stærri neysluveitum s.s þjónustu- og iðnaðarveitum allt að 200 Amper. Þá læra nemendur að teikna slíkar veitur; teikna sniðmyndir af gegnumtökum, afstöðumyndir auk grunnmynda. Lögð er áhersla að nemendur læri að magntölu- og kostnaðartaka ofangreindar veitur. Tölvutæknin er nýtt við gerð raflagnateikninga í seinni hluta áfangans.