Rofastjórar MRAT24ROF
Um námskeiðið
Tilgangurinn með þessu námskeiði er að fræða verðandi rofastjóra og endurmennta núverandi rofastjóra um rekstur og
hegðun raforkukerfa, tengivirkja og þann búnað sem í þeim er.
Farið er yfir gæðakerfi, verklag, ábyrgðir, merkingar á búnaði, tetra, lög og reglugerðir ofl.
Námskeiðið er kaflaskipt með verkefnum og svo lokaprófi á þriðja degi.
Forkröfur fyrir þetta námskeið eru að hafa lokið Kunnáttumannanámskeiði þar sem farið er ýtarlega yfir lög og reglugerðir.
Kennari
- Kristján Jóhann Guðmundsson
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 2
- Dagsetning
- 17.–19. nóvember · Þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag
- Tími
- kl. 08:30–16:30
- Staður
- Stórhöfða 27, Teams
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 72.000 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 25.200 kr. |
| SART | 61.200 kr. |
| Er í meistaraskóla | 14.400 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið mán–fös 8–12 og 13–16.
Hafa samband →