Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024

Útskrift meistaranema, kvikmyndatækni og afhending sveinsbréfa í raf- og rafeindavirkjun voru afhend við hátíðlega athöfn í sal Rafmenntar þann 20. desember.

Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024

Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024.

Útskrift meistaranema, kvikmyndatækni og afhending sveinsbréfa í raf- og rafeindavirkjun voru afhend við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica þann 20. desember.

Dagskráin var glæsileg að vanda með ræðuhöldum og afhendingu viðurkenninga fyrir góðan árangur.

  • 10 nemendur útskrifuðust úr Kvikmyndatækni.

  • 29 meistaranema.

  • 24 rafvirkjar luku sveinsprófunum að þessu sinni.

  • 7 rafeindavirkjar útskrifuðust.

Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024
Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024
Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024
Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024

Dúx í Kvikmyndatækni var Kristján Loftur Jónsson og hlaut hann verðlaun frá Stúdío Sýrlandi.

Félag Íslenskra Rafvirkja veitti Skafta Þór Einarsyni verðlaun fyrir góðan árangur í skriflega hluta sveinsprófs og Breka Gunnarssyni fyrir verklega hlutann. Breki Gunnarsson fékk einnig verðlaun frá SART fyrir heildarárangur á sveinsprófi í rafvirkjun

Verðlaun vegna góðs árangurs í sveinsprófum í rafeindavirkjun frá Félagi Rafeindavirkja hlutu Albert Snær Guðmundsson fyrir skriflegan árangur og Jakob Bjarki Hjartarson fyrir verklegan árangur. Fyrir heildarárangur á sveinsprófi í rafeindavirkjun hlaut Albert Snær Guðmundsson verðlaun frá SART.

Myndir frá athöfn má nálgast á Flickr síðu Rafmenntar.