Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

UTmessan 3. - 4. febrúar

RAFMENNT verður með kynningarbás á UTmessunni í Hörpu 3. - 4. febrúar

UTmessan 3. - 4. febrúar

UTmessan er einn stærsti viðburður ársins í tölvugeiranum og hefur verið haldin árlega frá árinu 2011. Tilgangurinn er ekki síst til að sýna almenningi hversu stór og umfangsmikil þessi grein er orðin hér á landi. Á UTmessunni sést fjölbreytileiki upplýsingatækninnar og þar sést svart á hvítu að allir hafa möguleika á að starfa í tölvugeiranum.

UTmessan - Forsíða

RAFMENNT verður með kynningarbás á UTmessunni, ásamt Rafal til að kynna þjónustu, nám og fleira sem er í boði.

Laugardaginn 4. febrúar er frítt inn fyrir almenning þannig við hvetjum okkar félagsmenn til að fjölmenna á UTmessuna og auðvitað kíkja við á básnum okkar í skemmtilegt spjall.