Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Þríburar í sveinsprófunum í rafvirkjun

Þríburabræðurnir Guðfinnur Ragnar, Gunnar Már og Þórir Örn þreyttu allir sveinspróf í rafvirkjun

Þríburar í sveinsprófunum í rafvirkjun

Þríburabræðurnir Guðfinnur Ragnar, Gunnar Már og Þórir Örn luku verklegum hluta sveinsprófs í rafvirkjun í gær.

Þessi mynd er tekin þegar þeir voru að ganga frá básunum að loknu verklega prófinu í raflögnum og stýringum 10. júní 2022.

Þeir útskrifuðust úr rafvirkjun sem viðbót við 4. stig vélstjórn frá Tækniskólanum í desember 2021.

Þríburar í sveinsprófunum í rafvirkjun

Frá vinstri: þríburabræðurnir Guðfinnur Ragnar, Þórir Örn og Gunnar Már Jóhannssynir.