Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Þjálfun nema á vinnustað - vinnustofa

Námskeið í samstarfi við Iðuna fyrir meistara og tilsjónarmenn nema á vinnustað.

Námskeið í samstarfi við Iðuna

Verður haldið 11. janúar og 13. janúar frá 13:00 - 16:00 á Stórhöfða 27

Þetta er gott námskeið fyrir meistara og tilsjónarmenn nema á vinnustað

Áherslur námskeiðsins eru eftirfarandi:

  • Mikilvægi fyrirmyndarhlutverksins

  • Aðstæðubundin stjórnun

  • Aðferðir jafningjastjórnunar

  • Færni við að gagnrýna, leiðrétta og hrósa

  • Ræða hlutverk meistara og tilsjónarmanns og væntingar sem nemar hafa

  • Markmiðasetning sem aðferð til að ná árangri.

Í fyrri hlutanum er farið yfir hlutverk meistara og tilsjónarmanna í þjálfun nema. Fjallað er um Aðstæðubundna stjórnun sem rammar inn ferlið og ólíkar aðferðir sem varðar stjórnun og samskipti.

Í seinni hlutanum er farið yfir aðferðir sem nýtast vel til að ræða frammistöðu og við að gagnrýna, leiðrétta og hrósa. Áhersla er á lipurð og fagmennsku í aðstæðum þar sem búast má við að gagnrýnin verði erfið.

Skráning hér