Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Sveinspróf í raf- og rafveituvirkjun hafin vorið 2021

Sveinsprófin í raf- og rafveituvirkjun eru hafin í júní 2021

Met aðsókn var í vor sveinsprófin að þessu sinni eða um 118 þátttakendur, í Reykjavík og á Akureyri.

Haldin eru Sveinspróf bæði í rafvirkjun og rafveituvirkjun, en sveinspróf í rafveituvirkjun hefur ekki verið haldið síðan 2017.

Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið sér um útgáfu sveinsbréfa, gjald fyrir útgáfu sveinsbréfa er 11 þúsund krónur.

Sveinsprófin í rafvirkjun samanstanda af bóklegum og verklegum prófum

Bókleg próf í rafvirkjun

Rafmagnsfræði, stýrikerfi og búnaður

31. maí

08:30 - 11:00

Íslenskur staðall ÍST 200;2006

31. maí

13:00 - 15:15

Raflagnateikning

1. júní

08:30 - 11:30

Verkleg próf í rafvirkjun

Mælingar

1. - 2. júní

Verklegt próf- raflagnir og stýringar

2. - 8. júní

Rafveituvirkjun er viðbótanám við rafvirkjun og samanstendur af bóklegum prófum.

Aflfræði, vinnubrögð og búnaður

1. júní

13:00 - 16:30

Öryggismál, ÍST 200 Tæknilegir tengiskilmálar

2. júní

08:30 - 10:30

Teikningar, teiknitákn og kort

2. júní

13:00 - 15:00

Næstu Sveinspróf í raf- og rafveituvirkjun verða haldin í febrúar 2022 ef næg þátttaka fæst

Umóknarfrestur fyrir Sveinspróf í febrúar 2022 er 1. - 30. nóvember, aðeins er tekið við rafrænum umsóknum í gegnum heimasíðu RAFMENNTAR.