Meistaranám í rafvirkjun og rafeindavirkjun
Meistaranám í rafiðngreinum er samtals 56 eininga nám, sem í stórum dráttum er skipt í tvo hluta, almennan hluta og sérgreinahluta. Almenni hlutinn er sameiginlegur öllum iðngreinum og skiptist hann í almennt bóknám (10 einingar) og nám í stjórnunar- og rekstrargreinum (16 einingar). Nám í almenna hlutanum er hægt að sækja í framhaldsskólum víða um land.
Meistaranám |
Meistaranám í rafiðngreinum er samtals 56 eininga nám, sem í stórum dráttum er skipt í tvo hluta, almennan hluta og sérgreinahluta.
Sérgreinahlutinn (fagnámið) í meistaranámi rafiðnaðarmanna fer fram í námskeiðsformi í Rafiðnaðarskólanum og er samtals 30 einingar. Nemendur verða að taka að minnsta kosti 7 einingar á önn til að teljast í reglulegu meistaranámi og njóta þeir þá niðurgreiðslu námsskeiðsgjalda. Flest fagnámskeiðin í Rafiðnaðarskólanum eru 3 daga námskeið. |