Raunfærnimat Vor 2026
Opið fyrir umsóknir í raunfærnimat á vorönn 2026!
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í raunfærnimat í rafiðngreinum og hljóðtækni á vorönn 2026. Upplýsingar og kynningarfundur verður haldin mánudaginn 19. janúar klukkan 15:30 á Microsoft Teams. Vinsamlegast kynnið ykkur ferlið á raunfærnimatinu hér: Hvað er raunfærnimat?
Lágmarks skilyrði til að skrá sig í mat er þriggja ára starfsreynsla í greininni og lágmarksaldur er 23 ára.