RAFMENNT útskrifar iðnmeistara í fyrsta skipti
Fyrsta útskrift iðnmeistara fór fram í húsnæði RAFMENNTAR á Stórhöfða 27 laugardaginn 20. maí 2023 við hátíðlega athöfn.
Við breytingar á Aðalnámskrá og kröfum til iðnmeistara árið 1995 var gerður samnigur við RAFMENNT (Rafiðnaðarskólann) um kennslu faggreina meistaranáms rafiðna. RAFMENNT öðlaðist viðurkenningu sem framhaldsskóli á seinasta ári sem opnaði á að Iðnmeistarar rafiðna gætu útskrifast frá RAFMENNT. Fyrsta útskrift iðnmeistara fór fram við hátíðlega athöfn laugardaginn 20. maí. Útskrifaðir voru 12 rafvirkjameistarar og 3 rafveituvirkjameistarar. Við óskum nýjum meisturum til hamingju með áfangann!
Myndir frá útskriftinni má nálgast hér