Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Öryggispassi Rafmenntar

Námskeiðið er nú uppselt. Hafið samband við skrifstofu og skráið ykkur á biðlista fyrir næsta námskeið! Öryggispassi Rafmenntar er staðfesting raf- og tæknifaggreinanna á að viðkomandi starfsmaður hafi fengið þá fræðslu sem þarf til að tryggja öryggi hans sem best á verkstað. Fræðsla er í skyndihjálp, brunavörnum, fallvörnum, vinnu í hæð og rafmagnsöryggi. Öryggispassi sem um leið er fullgilt vinnustaðaskírteini er gefið út fyrir alla þá sem ljúka námskeiði.

Öryggispassi Rafmenntar

Öryggispassa Rafmenntar er ætlað að vera staðfesting fagsins sjálfs á að viðkomandi starfsmaður sé öruggur á vinnustað. Viðkomandi geti á einfaldan hátt og á einum stað fengið fræðslu í öllum þeim öryggisþáttum sem starfsmaður í raf- og tæknigreinum þarf að tileinka sér strax í upphafi starfs og á skýran hátt sé tekið fram hve langt er síðan passinn var veittur og þannig hvatt til að þekkingu sé viðhaldið reglulega.

Þeir þátttakendur sem ljúka öllum námskeiðshlutum verður veitt dagsett skírteini með mynd og persónuupplýsingum til staðfestingar á námi sem viðkomandi getur þá borið á sér á verkstað. Skírteinið mun einnig verða fullgilt vinnustaðaskírteini til aukins hagræðis fyrir þátttakendur og atvinnurekendur þeirra greina sem lög gera ráð fyrir að beri slík skírteini ávallt á sér á verkstað.

Dagskrá:

Miðvikudagurinn 13. febrúar

  • 8:30 – 12:00 Skyndihjálp

  • 13:00 – 16:30 Brunavarnir

Fimmtudagurinn 14. febrúar

  • 8:30 – 12:00 Rafmagnsfræðsla

  • 13:00 – 16:30 Rafmagnsöryggi

Föstudagurinn 15. Febrúar

  • 8:30 – 12:00 Fallvarnir – Vinna í hæð

  • 13:00 – 16:30 Gestafyrirlestur, skoðunarferð

Nánari upplýsingar og skráningu á námskeiðið má finna hér!