Fara beint í efni
FagmennskaSamvinnaFramsækni

Orkumál - horft til framtíðar

Samtök rafverktaka, SART, í samstarfi við Samtök iðnaðarins standa fyrir ráðstefnu í Háteig á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 10. mars kl. 13.30-15.00.

Orkumál - horft til framtíðar

Samtök rafverktaka, SART, í samstarfi við Samtök iðnaðarins standa fyrir ráðstefnu í Háteig á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 10. mars kl. 13.30-15.00. Á ráðstefnunni verður farið yfir stöðu og þörf í orkuinnviðum á Íslandi í ljósi loftslagsmarkmiða. Gefin verður innsýn í nýja tækni vindorku og sólarorku og horft til þess hvaða færni fagfólk þarf að búa yfir í framtíðaruppbyggingu orkuinnviða.

Dagskrá

  • Opnunarávarp Hjörleifur Stefánsson, formaður SART

  • Staða orkuinnviða Lárus M. K. Ólafsson, sérfræðingur í orku- og umhverfismálum hjá SI

  • Aukin orkunýting Eymundur Sigurðsson, rafmagnsverkfræðingur M.Sc

  • Beislun vindorku á Íslandi - tækifæri og áskoranir Kristinn Arnar Ormsson, raforkuverkfræðingur M.Sc

  • Sólarorka Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar

  • Orkan í fólkinu okkar Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, stjórnarformaður Rafal

  • Umræður Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, stýrir umræðum með þátttöku eftirtaldra: Hannes Garðarsson, skrifstofu-, öryggis- og gæðastjóri Rafeyri, Þór Pálsson, framkvæmdastjóri Rafmenntar, og Egill Jóhannsson, forstjóra Brimborgar

  • Samantekt og lokaorð Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI

  • Fundarstjóri Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART

Skráning