Opið fyrir umsóknir í sveinspróf!
Nú er opið fyrir umsóknir í sveinspróf í rafvirkjun, rafveituvirkjun og rafvélavirkjun. Umsóknarfrestur er frá 1. til 31. mars 2026 og munu prófin fara fram í júní 2026.
Nú er opið fyrir umsóknir í sveinspróf í rafvirkjun, rafveituvirkjun og rafvélavirkjun. Umsóknarfrestur er frá 1. til 31. mars 2026 og munu prófin fara fram í júní 2026. Sveinsprófið er mikilvægur áfangi á starfsferli rafiðnaðarnema og staðfestir faglega hæfni í greininni.
Allir sem hyggjast þreyta próf eru hvattir til að sækja um í tæka tíð.
Umsóknir fara fram á vef Rafmenntar undir Sveinspróf Frekari upplýsingar um undirbúning og próf má finna á síðum fyrir hvert sveinspróf.